ji_frontimage03.jpg
Samtökin
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um Landvernd
English
Málefni
Reykjanesskagi
Langisjór
Alviðra
ÍslandsGátt
Hálendisvegir
Gjábakkavegur
Vatnajökulsþjóðgarður
Þjóðarblóm
Loftslagsverkefni
Árneshreppur
Ýmislegt
Lögverndarsjóður
Ýmsar greinar
Bækur - Bolir
Skrá netfang
Fjarlægja netfang

Þjóðarblóm


Að ósk Verkefnisstjórnar um þjóðarblómið, sem skipuð er fulltrúum fjögurra ráðuneyta, stóðu Landvernd og Morgunblaðið að opinni skoðanakönnun dagana 1.-15. október 2004 í þeim tilgangi að fá fram viðhorf Íslendinga til málsins. Niðurstaðan var kynnt í Salnum í Kópavogi síðasta sumardag að viðstöddum forseta ÍSlands:

(Dryas octopetala) af rósaætt.


1. sæti Holtasóley 21.943 stig
2. sæti Gleym-mér-ei 21.802 stig
3. sæti Blóðberg 21.385 stig
4. sæti Blágresi 19.243 stig
5. sæti Hrafnafífa 15.514 stig
6. sæti Lambagras 15.085 stig
7. sæti Geldingahnappur 14.597 stig

Skoðanakönnunin var opin öllum þeim sem hafa íslenska kennitölu.

Skoðanakönnunin fór fram á netinu og með póstlögðum atkvæðaseðlum sem birtust í Morgunblaðinu. Þátttakendur voru 7.025 og gildir seðlar voru 6.919. Við valið var stuðst við raðvalsaðferð þannig að þátttakendum gafst kostur á að forgangsraða blómunum 7 með því að skipa þeim í sæti 1 til 7. Í grundvallaratriðum felst aðferðin í því að það blóm sem viðkomandi kjósandi skipar í fyrsta sæti hlýtur sex stig og ef blómi er skipað í 7 sæti hlýtur það ekkert stig. Nánar er greint frá þessari aðferð í bók Björns S. Stefánssonar ,,Lýðræði með raðvali og sjóðvali” (2003).

S.l. vor voru kynntar tuttugu tillögur að þjóðarblómi en eftir nánari umfjöllun í sumar og ábendingar sem fram komu frá skólum landsins var ákveðið að þrengja hringinn um þau sjö blóm sem að framan hafa verið nefnd. Nú virðist holtasóley geta hlotið þann virðingarsess að vera þjóðarblóm Íslendinga. Af ýmsum viðbrögðum sem fram hafa komið í tengslum við þetta verkefni, má fullyrða að gleym-mér-ei er blóm vináttu, æsku og góðra minninga.

Tilgangur verkefnisins ,,leitin að þjóðarblóminu” er að komast að því hvort tilgreina megi blóm sem gæti haft táknrænt gildi og sem þjónaði hlutverki sem sameiningartákn; blóm sem nýta mætti í kynningar- og fræðslustarfi bæði hér á landi og á erlendum vettvangi. En jafnframt er markmið verkefnisins að skapa umræður um blóm og gróður til að auka samstöðu um gróðurvernd.

Verkefnið var að frumkvæði landbúnaðarráðuneytis og hefur verið unnið í samstarfi við menntamálaráðuneyti, samgönguráðuneyti og umhverfisráðuneyti. Landvernd var falin umsjón með framkvæmd. Verkefnisstjórn fyrir ,,leitina að þjóðarblóminu” skipuðu Níels Árni Lund, landbúnaðarráðuneyti, formaður, Vilhjálmur Lúðvíksson menntamálaráðuneyti, Helga Haraldsdóttir samgönguráðuneyti og Ingibjörg Ólafsdóttir umhverfisráðuneyti.
Sjö ,,frambjóðendur"
Þjóðarblóm - til hvers?
Hvaða kröfur gerum við til þjóðarblómsins?
Verkefnisstjórn
Hvernig get ég tekið þátt í að finna þjóðarblómið
Grunnskólanemar taka þátt í leitinni
Landshlutablóm
Greinar um þjóðarblómið
Íslenskar jurtir - flóra Íslands
Tuttugu tilllögur að þjóðarblómi (plöntu)
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: landvernd@landvernd.is