ji_frontimage3.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Fréttir
Vistvænn lífsstíll
25. apríl 2008 - Vistvernd í verki

Hér má nálgast Skref fyrir skref á pdf formi.

Önnur útgáfa af upplýsingariti Vistverndar í verki, Skref fyrir skref, hefur nú litið dagsins ljós. Landvernd og Umhverfisráðuneytið standa saman að útgáfunni og mun Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, afhenda Vigdísi Finnbogadóttur, verndara Landverndar, fyrsta heftið glóðvolgt úr prentsmiðju við hátíðlega athöfn á Degi umhverfisins í Perlunni í dag, 25. apríl.

Skref fyrir skref er hugsað til að hvetja fólk til dáða og auðvelda því að tileinka sér breyttan og bættan lífsstíl. Í ritinu er að finna upplýsingar um þau margþættu áhrif sem daglegar neysluvenjur okkar hafa á samfélagið, náttúruna og fjármálin og bent á einfaldar leiðir til úrbóta.

Í formála ráðherra segir: „Ef við leggjumst öll á eitt geta breyttir lífshættir og neyslumynstur okkar bætt lífsgæði okkar allra. Það getur verið erfitt að breyta gömlum viðhorfum en vaxandi vitund fólks um gildi umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar samfélagsins er afl mikilla breytinga sem gefa okkur fyrirheit um betra líf fólks um allan heim. En lausnirnar eru til staðar - bæði framkvæmanlegar og hagkvæmar. Það er hlutverk stjórnvalda að gera fólki auðveldara að velja sjálfbærar leiðir í lífi sínu og störfum.“

Í framhaldi af Degi umhverfisins stendur Umhverfisráðuneytið, í samstarfi við Sorpu og Úrvinnslusjóð, fyrir sýningu í Perlunni laugardaginn 26. apríl kl. 11-17. Fjöldi fyrirtækja og samtaka koma að sýningunni og hvetjum við fólk eindregið til að koma og kynna sér „vistvernd í verki“ .

Sjá nánari dagskrá hér.
Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is