ji_frontimage4.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Fréttir
Óefnislegar gjafir - vistvæn ánægja
18. desember 2007 - Vistvernd í verki

65% svarenda í neyslukönnun kannast við að hafa fengið gjöf sem þeir hafa ekki not fyrir. Þeir kannast einnig við að hafa ekki skipt henni vegna tillitssemi við gefandann.

Hlutir sem eru framleiddir til þess eins að verða engum að gagni eru hlutir sem valda óþörfu umhverfisálagi. Með því að gefa óefnislegar gjafir er hægt að draga úr ásókn í auðlindir jarðar. Óefnisleg göf getur t.d. verið leikhúsferð eða árs aðild að Landvernd.

Svarendur í könuninni telja sig gefa gjafir fyrir um 40 til 50 þúsund á ári og flestir eða 84% telja sig fá gjafir sem koma að góðum notum. 40% kaupa dýrari gjafir en þeir vilja í raun.

Meirihluti svarenda segist hafa fengið gjöf sem átti að skipta en að einhverjum ástæðum hafði það síðan misfarist. Þeir sem yngri eru hafa frekar látið hjá líða að skila gjöfum sem henta ekki og einnig þeir sem hafa hærri tekjur og meiri menntun. „Skil á slíkum gjöfum dregur úr sóun því ónotuð gjöf nýtist engum,“ segir Einar Mar Þórðarson sérfræðingur hjá Félagsvísindastofnun sem hafði umsjón með könnuninni.

Spurt var: „Hefur þú keypt dýrari gjöf en þú hefur viljað eingöngu vegna þess að það er venjan?“ Tæplega 40% svöruðu játandi. Yngri svarendur segjast frekar hafa keypt dýrari gjöf en þeir hafi viljað og einnig þeir sem hafa meiri menntun.

Flestir svarendur telja sig gefa gjafir fyrir um 40 til 50 þúsund á ári. Karlar kaupa gjafir að meðaltali fyrir hærri upphæðir en konur og þeir sem eldri eru kaupa gjafir fyrir hærri upphæðir en þeir sem yngri eru. Þeir sem eru með meiri menntun og hærri heimilistekjur eyða einnig meira í gjafir en aðrir

Könnunin var unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og var samstarfsverkefni Sorpu bs., Sorpstöðvar Suðurlands bs., Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf., Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, Neytendasamtakanna, Landverndar og Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Könnunin fór þannig fram að sendir voru spurningalistar til 3000 manns í mars 2007. Alls svöruðu 1198 eða rétt um 40%. Skýrsla með niðurstöðum könnunar á neysluvenjum og viðhorfum til endurvinnslu kemur út í janúar 2008.

Hér má nálgast frekari gögn um þennan þátt könnunarinnar.

Á séstöku vefsvæði Vistverndar í verki er að finna fróðleik um vistvænt jólahald. Gleðileg jól.
Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is