ji_frontimage9.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Fréttir
Kaupa ekkert í tvo mánuði
29. janúar 2007 - Vistvernd í verki

Þrettán manna hópur í Laugarnesskóla fetar nú í fótspor Compact hópsins í Los Angeles og hafa strengt þess heit að kaupa ekkert í tvo mánuði (19. janúar - 19. mars). Þau kalla aðgerðina Þreyjum Þorrann og Góuna og leyfa sjálfu sér aðeins að kaupa mat, hreinlætisvörur, lyf og öryggisvörur á meðan á tímabilinu stendur. En einnig notaða hluti t.d. á skiptimörkuðum. Hópurinn er með afar skemmtilega bloggsíðu Þorri og Góa

Tilgangurinn er að segja markaðsöflunum stríð á hendur, gerast umhverfisvænni, spara peninga og draga úr ,,hlutafveiki og græðgisvæðingu".
Á heimasíðunni er skorað á lesendur að taka þátt: ,,Það er aldrei of seint að byrja og þeir sem vilja bætast í hópinn geta sent okkur póst."

Fyrir hönd Vistverndar í verki óskar verkefnisstjóri hópmeðlimum til hamingju með frábært framtak og tekur glaður áskoruninni um þátttöku. Jörðin og öll hennar börn þarfnast þess að við tökum þátt og okkur Íslendingum veitir ekki af æfingu í nægjusemi og að minnka neysluna. Mannkynið er um þessar mundir að nota 120% af því sem jörðin hefur upp á að bjóða (í árlegan arð eða ,,uppskeru") og er því hratt gengið á höfuðstólinn. Íslendingar tróna í toppsæti hvað varðar neyslu.
Sláumst í hópinn!
Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is