|
Góðir vinir eiga skilið flottar gjafir. Bæði um jól sem og á öðrum tímum árs. En hvaða gjafir eru flottastar?
Ekki síst um jólin eru örugglega margir sem bæði gefa og fá hluti sem varla nokkrum hafði dottið í hug að þeir óskuðu sér. Við stingum upp á því að þetta árið verði leitað nýrra og frumlegri leiða. Gefðu það fínasta og dýrmætasta sem þú átt, tíma og sameiginlegar upplifanir. Þetta eru gjafir sem hafa þann sérstaka eiginleka að sá sem gefur, fær líka. Og sá sem fær, gefur líka. Bestu hugmyndunum býrðu yfir sjálf/ur, en þurfirðu hjálp til að komast af stað geturðu kannski nýtt þér eftirfarandi lista.
Sérstaklega fyrir börn:
· Kúrekaleikur · Ævintýrastund · Ævintýri lesið inn á spólu · Þín eigin ævintýri á ritformi · Snjóhúsagerð – með eða án gistingu · Indjánabúðir – leikur og bygging · Leikdagur · Lúdókvöld (eða Yatzy, tafl, Master Mind, Monopoly…) · Púsluspilakvöld · Spurningaleikja-kvöld · Lestrarstund · Laugardags-kósístund · Vökunótt · Bull og fíflast – tími · Geimskipaleikur · Sími úr niðursuðudósum (búa hann kannski til saman) · Upplifanir, t.d. miði í barnaleikhús, bíó, Fjölskyldu og húsdýragarðinn, keilu .. · Bækur – börn lesa minna en áður, ágætt mótvægi við tölvuspilin · Leikföng – kauptu eitthvað sem endist lengi, þjálfar hæfni eða hugsun og er jafnvel hægt að nota utandyra: Skíði, sleða, rasssþotu, sippuband, snú-snú band, krítar, stultur, húlahring, jójó, spil, þrautir, föndurdót, málningu o.s.frv.
Námskeið og tómstundir:
· Tölvunámskeið · Danstímar · Badmintontímar (með þér eða til hjóna/vina) · Þjóðdansanámskeið · Magadansnámskeið · Listmálunarnámskeið · Fótboltaleikur · Fjallaklifur · Kennsla á hlóðfæri (og ef til vill hljóðfæri) · Reiðnámskeið
Tími þinn:
· Heimilishjálp · Barnapössun · Kattarpössun · Bílaviðgerð · Annarskonar viðgerðir · Gluggatjaldaþvottur og strauun · Klippa runnann í garðinum · Uppvask · Reiknishjálp · Pússa silfrið · Kvöldverðarboð · Aðstoð við innkaup · Reita arfa · Nudd (t.d. með nuddolíu) · Klór á bakið · Tiltekt á loftinu · Snjómokstur · Gluggaþvottur · Saumaaðstoð (falda buxur o.þ.u.l.) · Gjafakort á hverskyns annarskonar aðstoð · Gjafakort á eigin tíma og þjónustu t.d. námskeið í erlendu tungumáli, heimasíðugerð eða öðru því sem maður kann
Upplifanir (sameiginlegar eða ekki):
Gjafakort: · Leikhúsferð · Sumarbústaðarferð · Keilukvöld · Bíltúr · Fjölþjóðlegt eða þjóðlegt kvöld (matur, dans, tónlist) · Fjallaferð · Gönguferð · Sveppatínsluferð · Hjólaferð · Skautaferð · Hellaferð · Tjaldferð · Næturgöngutúr · Aðrar náttúruupplifanir · Boð út að borða · Galleríferð · Safnferð · Djasstónleikar · Sinfóníutónleikar · Rokktónleikar · Karaoke-kvöld · Bíóferð · Ópera
Heilsubót:
Gjafakort: · Nálastungur · Nudd · Ilmolíumeðferð · Svæðanudd · Heilun · Kort í líkamsrækt · Yoga-tímar · Hárgreiðslustofa · Snyrtistofa
Aðrar óefnislegar gjafir:
· Ljóð (eigin og annarra) · Trygging · Sumarfrí á sveitabæ · Áskrift að netinu · Söngur (saminn og/eða fluttur af þér) · Myndverk eftir þig · Heimasíða
Sniðugar efnislegar gjafir:
· Fuglahús · Fuglabretti · Fuglafóður · Áskrift, t.d. á tímarit · Ljósmyndir · Myndaalbúm með kópíum af gömlum myndum · Kryddjurtir · Fiskur sem þú veiddir í sumar · Símakort · Taubleyjur · Geisladiskar – þeir krefjast lítillar orku við framleiðslu · Bækur – gjarnan bækur sem styrkja gott málefni eða eru fræðandi um sjálfbærara líf · Spil – fjölskylda og vinir sameinast oft skemmtilega yfir spilum
|