ji_frontimage02.jpg
Vistakstur
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Um verkefnið
Námskeið í vistakstri
Fróðlegt efni

Námskeið í vistakstri fyrir vinnustaði - á vegum Landverndar

Landvernd er um þessar mundir að fara af stað með námskeið í vistakstri. Fer kennsla fram með hjálp vistakstursherma. Líkja má hermunum við leikjatölvur sem forritaðar eru með mismunandi akstursleiðum. Felast æfingarnar í að þjálfa ökumenn í að nýta betur eldsneyti og vernda umhverfið með hjálp nýrrar aksturstækni.
Námskeiðin eru fyrst og fremst hugsuð fyrir vinnustaði. Auðvelt er að flytja vistaksturshermana á milli staða og því hægt að bjóða upp á námskeið á vinnustöðunum sjálfum.
Belgísku umhverfissamtökin Eco Life hafa þróað búnaðinn í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Green Dino í Hollandi, og sjá Toyota bílaverksmiðjurnar í Evrópu um fjármögnun verkefnisins.
Landvernd heldur utan um námskeiðin á Íslandi og sér um að þjálfa leiðbeinendur. Bakhjarlar verkefnisins á Íslandi eru Ríkisstjórn Íslands, Toyota á Íslandi og VÍS og er Orkusetrið á Akureyri samstarfsaðili.

Bæklingur um Vistakstur
Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is