ji_frontimage03.jpg
Vistakstur
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Um verkefnið
Námskeið í vistakstri
Fróðlegt efni

Vistaksturskennsla í samgönguviku
22. september 2009 - Vistakstur
Í tilefni af samgönguviku sem haldin er árlega víðsvegar um Evrópu stóðu Vistvernd í verki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu fyrir kynningu á vistakstri í Mosfellsbæ, Kópavogi, Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Starfsfólki bæjarfélaganna og öðrum íbúum var gefinn kostur á að æfa vistakstur á ökuherma undir leiðsögn og bar ekki á öðru en að fólki líkaði framtakið vel.
Kennsla í vistakstri á sér 10 ára sögu í Evrópu og nýtur hún mikilla vinsælda meðal fyrirtækja sem kenna vilja starfsmönnum sínum að spara eldsneyti. Námskeið Landverndar eru að því leyti nýstárleg að við kennsluna eru notaðir ökuhermar sem líkja má við leikjatölvur sem forritaðar eru með mismunandi akstursæfingum.
nánar ->
Vistvernd í verki kynnir vistakstur í samgönguviku
16. september 2009 - Vistakstur
Í tilefni af samgönguviku sem haldin er árlega víðsvegar um Evrópu munu Vistvernd í verki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu kynna vistakstur í Mosfellsbæ, Kópavogi, Reykjavík, á Seltjarnarnesi og í Garði.
Vistakstursverkefni Landverndar er að því leyti nýstárlegt að við kennslu í vistakstri eru notaðir ökuhermar sem líkja má við leikjatölvur sem forritaðar eru með mismunandi akstursæfingum. Áhugi Landverndar á verkefninu skýrist af því að með þessu móti er hægt að stuðla að minni loftmengun, spara peninga og fækka slysum í umferðinni.
nánar ->
Vistakstursverkefni Landverndar hafið
22. september 2008 - Vistakstur
Forsætisráðherra Geir H. Haarde hleypti í dag vistaksturverkefni Landverndar formlega af stokkunum við hátíðlega athöfn á Hilton hótelinu. Forsætisráðherra keppti við þetta tækifæri í vistakstri ásamt þeim Guðmundi Erni Gunnarssyni forstjóra VÍS, Magnúsi Kristinssyni stjórnarformanni Toyota á Íslandi og Sigurði Inga Friðleifssyni hjá Orkusetrinu. Úrslit keppninnar urðu þau að Geir H. Haarde sigraði en hann eyddi aðeins 5,67 l af bensíni á hundraðið.
nánar ->
Skrá netfang
fjarlægja netfang

• Minnkar útblástursmengun frá ökutækjum um 10-15%
• Dregur úr eldsneytisnotkun - sparar peninga
• Eykur öryggi í umferðinni um 30%

Vissir þú að eldsneytisbrennsla eykst:
• Um allt að 35% ef þú ert með farangur á þakinu
• Um 2-5% þegar loftþrýstingur í dekkjum er of lítill

Í vistakstri skiptir máli að ...
• Gíra hratt upp eftir að tekið er af stað
• Skipta í hærri gír á 2000-2500 snúninga vélarhraða
• Aka í 4.-5. gír á 50 km hraða þar sem leið er greið
• Halda jöfnum ökuhraða

Fleiri góð ráð og fróðleikur um Vistakstur

izle

oyun

oyun

video

pes

youtube

bedava izle

izle

oyun

oyun

Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is