|
Skipulagsstofnun Laugarvegi 166 105 Reykjavík 3.september 2004
Efni: Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar
Stjórn Landverndar hefur kynnt sér framangreinda skýrslu.
Stjórnin gerir ekki athugasemd við þann hluta framkvæmdarinnar sem fellur austan Reyðarbarms. Hins vegar vekja áform um framkvæmdir í Eldborgarhrauninu (leið 7 ) áhyggjur vegna neikvæðra áhrifa á landslag og jarðmyndanir. Því telur stjórnin að það sé betri kostur að endurbyggja með hóflegum hætti núverandi veg (leið1) í óbreyttu vegastæði þó það feli í sér að draga verði verulega úr kröfum um aksturshraða.
Í matsskýrslunni kemur fram að báðir valkostir um vegastæði vestan Reyðarbarms (leið 1 sem lögð er fram til samanburðar og leið 7 sem Vegagerðin óskar eftir að fá samþykkta) hafa ýmis neikvæð áhrif á umhverfi á þessu verðmæta svæði (einkum landslag, jarðminjar og menningarminjar). Hafa ber í huga að áformuð leið 7 liggur um svæði sem tilgreint er í tillögum Umhverfisstofnunar um friðlýsingar (Náttúruverndar áætlun 2004-2008) og mun í framtíðinni hugsanlega verða hluti Þingvallaþjóðgarðs. Vegastæði 1 er innan núverandi marka þjóðgarðsins og umfang endurbyggingar vegarins verður að taka mið af því.
Stjórn Landverndar metur það svo að erfitt eða jafnvel ómögulegt sé að byggja veg um þetta svæði sem uppfylli skilyrði um 70 til 90 km. hámarkshraða án þess að það hafi afar neikvæð áhrif á jarðmyndanir og landslag. Stjórnin telur að við hönnun og gerð vega á þessu svæði beri fyrst og fremst að taka tillit til verndarhagsmuna þó að það þýði að draga þurfi úr leyfilegum umferðarhraða. Því virðist æskilegt að byggja því sem næst alfarið á núverandi vegstæði og vegurinn yrði endurgerður með hóflegum hætti með það fyrir augum að mæta þörfum ferðamanna sem eru að skoða sig um á svæðinu og ættu því að geta miðað aksturshraða við talsvert lægri mörk en 70 til 90 km hraða. Ekki er ástæða til að haga byggingu vega með þeim hætti að gegnumakstur á svæðinu vaxi.
Stjórn Landverndar hefur einnig áhyggju af efnistökustöðum J (aurkeila í Miðfelli) og K (Stóri Dímon). Efnistöku á þessum stöðum ætti einungis að miða við nauðsynlegar aðgerðir til að ganga frá núverandi raski.
Stjórn Landverndar minnir á mikilvægi vatnsverndar og telur að ástæða geti verið til að takamarka heimildir til flutninga á eldsneyti og hættulegum efnum um svæðið. f.h. stjórnar Landverndar Virðingarfyllst,
Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri
|