Fundargerð, staðfest á fundi 23.5.2003 Mætt: Auk þess mættu Hákon Aðalsteinsson Orkustofnun, Páll Jensson ráðgjafi og Tryggvi Felixson Landvernd og var Tryggva falið að skrifa fundargerð. Fjarveru tilkynntu Einar Bollason, Þorkell Helgason og Ingimar Sigurðsson. SvB sett fund kl. 11.25. 1. Fundargerð síðasta fundar (9.maí) 2. Niðurstaða faghóps III 3. Svar til Héraðsvatna vegna Villinganesvirkjunar ÞJ óskaði að taka fram að hann gæti fyrir sitt leyti samþykkt bréfið þar sem það sé rökrétt svar ef gengið er út frá þeirri aðferðafræði sem hefur verið samþykkt og beitt var við matið. Hins vegar hafi hann efasemdir um að fjárhagslegir hagsmunir fljótareiðar geti verið eins miklir og fram hafi komið í útreikningum. 4. Efni í skýrslu verkefnisstjórnar Ýmsar ábendingar komu fram sem teknar vour saman í minnisblað. TFel lagi fram efni í kafla um samráð og lýsti eftir ábendingum og athugasemdum. 5. Túlkun á niðurstöðum - greining Páls Jenssonar Annars vegar eru kostir flokkaðir á grundvelli vísitölu umhverfisáhrifa í 5 flokka, frá "a" til "e". Undir flokk "a" falla virkjanir sem eru með umhverfisvísitölu undir 1, í flokk "b" á bilinu 1 til 2,5, í flokka "c" frá 2,5 til 4, flokk "d" 4 til 8 og undir flokk "e" virkjanahugmyndir með þaðan af hærri vísitölu umhverfisáhrifa. Flokkarnir endurspegla megin hópa virkjana, en ekki er búið að taka saman rökstuðning fyrir þessari flokkun. Reikna má með að í "a" flokk falli virkjanir þar sem almenn umhverfisáhrif eru óveruleg. Í flokk "b" virkjanir sem hafa tiltölulega lítil umhverfisáhrif, en geta í vissum tilvikum búið yfir einhverjum eiginleikum sem vekja ber athygli á. Hins vegar er flokkað eftir vísitölu hagnaðar. Í greiningu PJ kemur m.a. fram framleiða má um 11 TWst af orku á ári í virkjunum sem falla undir flokk "a" og skila hagnaði, miðað við gefnar forsendur um verð orku. Þá sýndi Páll dæmi um það hvernig mæta má tilgreindri eftirspurn eftir orku í ákveðnum landshlutum. Fundarmenn töldu greiningu og framsetningu PJ upplýsandi og gagnlega og samþykkt var að styðjast við hana við samantekt á niðurstöðum verkefnisstjórnar. Önnur mál og næsti fundur Samþykkt var að boða faghópa og tiltekna sérfræðinga sem unnið hafa að rammaáætlun til fundar þar sem farið verði yfir helstu niðurstöður áður en lokið verður við gerð skýrslu verkefnisstjórnar. |