|
Fréttir og nýtt efni
- Frásögn af málþingi um rammaáætlun sem haldið var 30. jan. 2004
10. mars 2004: - Markmiðið var að fá fram sjónarmið og ábendingar um niðurstöður 1. áfanga rammaáætlunar, vinnubrögð, aðferðir og notagildi, sem og að líta til þess sem helst ber að hafa hliðsjón af við skipulag 2. áfanga rammaáætlunar.
... - Nánar
- Málþing um rammaáætlun föstudaginn 30. janúar 2004
23. janúar 2004: - Föstudaginn 30. janúar n.k. verður haldið málþing um 1. áfanga rammaáætlunar
um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Málþingið verður haldið í nýju
náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands og hefst kl. 13.30.
... - Nánar
- Kort af vatnsverndarsvæðum Rammaáætlunar
22. desember 2003: -
... - Nánar
- Skýrsla um íslensk stöðuvötn
4. desember 2003: - Í tengslum við starf Faghóps I hefur verið unnin áfangaskýrsla um Vistfræði-
og verndarflokkun íslenskra stöðuvatna. Að verkinu komu Náttúrufræðistofa
Kópavogs, Líffræðistofnun Háskólans, Hólaskóli og Veiðimálastofnun.
... - Nánar
- Skýrsla verkefnisstjórnar um 1. áfanga komin út
27. nóvember 2003: - Verkefnisstjórn hefur skilað skýrslu um 1. áfanga. Í skýrslunni er að finna samanburð á um 40 virkjunarhugmyndum. Í samanburðinum er litið er til hagkvæmni, en einnig til þess hvaða áhrif virkjanir hafa á náttúrufar. landslag, minjar, útvist, veiðar, hlunnindi og byggðir.
... - Nánar
- Lýsing á virkjanakostum rammaáætlunar er komin á vefinn
16. september 2003: - Yfirlit og landakort fyrir jarðhitakosti og vatnsorkukosti sem metnir eru í
1. áfanga rammaáætlunar er nú að finna á vef Orkustofnunar www.os.is/
undir liðinn verkefni."
... Nánar: Jarðhitakostir - Vatnsorkukostir
- Gildi hálendisins fyrir ferðaþjónustu og útvist til 2020
18. júní 2003: - Hagsmunir og möguleikar ferðaþjónustu á hálendinu eru einn þeirra þátta sem skoðaðir hafa verið vegna vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Það er ekki nægjanlegt að líta til núverandi notkunar þar sem flest bendir til þess að gildi ferðaþjónustu fyrir íslenskt atvinnulíf fari vaxandi.
... - Nánar
- Verkefnisstjórn reiknar með að ljúka störfum í maí
31. mars 2003: - að er farið að sjá fyrir endann á 1. áfanga rammaáætlunar. Í þessum áfanga verður fjallað um 19 vatnsaflsvirkjanir og 22 jarðvarmavirkjanir á 9 háhitasvæðum.
... - Nánar
- Jarðhitasvæðin á kortið
15. feb. 2003: - Orkustofnun hefur sett upp vef um einkenni hvera og lauga á háhitasvæðum hér á landi. Á þessum vef er m.a. hægt að skoða þau svæði sem verið er að meta í 1. áfanga rammaáætlunar.
... - Nánar
- Mat lagt á aðferðafræði og tilraunamat faghóps III
16. jan. 2003: - Nýlega var haldinn fundur um aðferðafræði faghóps III. Markmið fundarins
var að athuga með gagnrýnum hætti aðferðafræði og tilraunamat faghóps III.
Á fundin kom fram það álit að hlutverk faghóps III hefði verið of víðfemt
og metnaðarfullt og að það væri ekki nokkur leið að uppfylla það. Því voru
uppi efasemdir um að faghópur III gæti skilað upplýsingum sem auðvelduðu
stjórnvöldum að gera upp á milli virkjana. Nánar í frásögn af fundinum og
skýrslu um tilraunamat faghóps III.
... - Nánar
- Náttúrufar á hálendinu kortlagt
18. des. 2002: - Náttúrufræðistofnun Íslands kynnti athyglisverða rannsókn á fundi í Norrænahúsinu 11. desember s.l. Undanfarin fjögur ár hefur Náttúrufræðistofnun unnið að því að fá heildstætt yfirlit yfir náttúrufar á hálendi Íslands. Verkefnið er unnið ... - Nánar
- Kynningarfundur: Heilstæð sýn á náttúrufar á hálendi Íslands?
23. nóv. 2002: - Kynningarfundur í Norrænahúsinu í Reykjavík 11. desember kl. 16.30-18.00. Í tengslum við rammaáætlun hefur Náttúrufræðistofnun Íslands unnið markvisst að rannsóknum sem eiga að veita heilstæða sýn á náttúrufar á hálendinu. ... - Nánar
- Áfangaskil í mars 2003
13. nóv. 2002: - Sveinbjörn Björnsson formaður verkefnisstjórnar átti nýlega fund með iðnaðar- nefnd Alþingis þar sem hann kynnti framvindu vinnu við rammaáætlun. Á fundinum upplýsti Sveinbjörn að nú væri unnið að söfnun gagna sem lögð verða til grundvallar ... - Nánar
- Hvaða jarðhitasvæði verða metin í rammaáætlun ?
30. sept. 2002: - Markvisst er unnið að því að ljúka vinnu við 1. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Á verkefnisstjórnarfundi í september var samþykkt vinnuáætlun sem miðar að því að skila skýrslu til stjórnvalda um niðurstöðu ... - Nánar
- Kynningarfundir um niðurstöður úr tilraunamati
Verkefnisstjórn rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, í samstarfi við Landvernd, boðar til kynningafundar um niðurstöður tilraunamats á 15 virkjunarhugmyndum. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. maí kl. 16.30 í Háskóla Íslands, VRII - stofu 157. ... 28. maí 2002 - Nánar lýsing og töflur
- Niðurstöður úr tilraunamati á 15 virkjunarkostum í vatnsafli
Þegar verkefnisstjórn Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma hóf störf árið 1999 setti hún sér það markmið að ljúka 1. áfanga áætlunarinnar í ársbyrjun 2003 með mati og samanburði á 20 - 25 virkjunarkostum vatnsafls og jarðvarma. Þar yrði fjallað um helstu kosti á virkjun vatnsafls í jökulám á hálendinu og jarðvarma á háhitasvæðum nærri byggð. Þetta markmið er enn í gildi. ... 28. maí 2002 - Nánar
- Aðferðir við mat á áhrifum virkjana - niðurstöður faghópa
Aðferðir faghópa eru að taka á sig mynd.
Undanfarið hefur verið unnið að tilraunamati vegna 15 virkjunarhugmynd.
Faghóparnir hafa móta hugmyndir um aðferðafræði sem beitt hefur verið við
matið. Aðferðirnar verða endurmetnar í ljósi reynslu við tilraunarmatið.
Niðurstaða tilraunamatsins verður kynnt í maí en greinargerðir um
aðferðafræðina hafa nú verið birtar hér á heimasíðunni. ... 3. maí 2002 - Nánar
- Virkjunarhugmyndir í Þingeyjarsýslum
Skilningsleysi höfuðborgarbúa á þörfum landsbyggðarinnar var eitt af þeim atriðum sem upp komu í umræðum um virkjunarkosti í Þingeyjarsýslum, á fundi sem Landvernd og verkefnisstjórn rammaáætlunar stóðu fyrir á Húsavík þann 23. október sl. Töldu sumir fundargesta það áberandi að þegar ... 7. nóv. 2001 - Nánar - Dagskrá fundarins
- Fundur á Kirkjubæjarklaustri - Skaftá og Hólmsá í brennidepli
Virkjunarhugmyndir í Skaftá og Hólmsá voru aðalumræðuefni á fundi Landverndar og verkefnisstjórnar rammaáætlunar sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri 2. október sl. Í máli Sveinbjörns Björnssonar, formanns verkefnisstjórnar, kom fram að ... 15. okt. 2001 - Nánar
- Aðferðir við að meta sjónrænt gildi landslags
"Mat á landslagi er félagslegt fyrirbæri, þar sem menning er mikilvægt atriði," segir Carl Steinitz, prófessor við landslagsarkitektadeild Harvardháskóla, en hann hélt fyrirlestur um aðferðir við að meta sjónrænt gildi landslags, þann 17. júlí sl ... 13. sept 2001 - Nánar
- Flokkun landslags
Þóra Ellen Þórhallsdóttir gerir hér tilraun til að flokka landslag á sjónrænan hátt. Myndform er tekið úr Power-Point skjali ... 13. sept 2001 - Nánar
- Harvardprófessor fjallar um íslenskt landslag
Carl Steinitz, prófessor við landslagsarkitektadeild Harvardsháskóla mun halda tvo fyrirlesta um mat á landslagi í Norræna húsinu 17. og 22. júlí n.k. 3. júlí 2001 - Nánar
- Fjölmennur fundur í Árnesi
Virkjunarmál eru Sunnlendingum greinilega ofarlega í huga þessa dagana, því setið var í nánast hverjum stól á fundi sem Landvernd og verkefnisstjórn rammaáætlunar stóðu fyrir í Félagsheimilinu Árnesi þann 29. maí sl. 18. júní 2001 - Nánar
- Virkjanahugmyndir á Suðurlandi
Landvernd og verkefnisstjórn rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma standa fyrir kynningar- og umræðufundi um virkjunarkosti á Suðurlandi í félagsheimilinu Árnesi, þriðjudaginn 29. maí kl. 20.30. 23. maí 2001 - Nánar
- Málstofa um ferðamenn á hálendinu
Viðhorf ferðamanna til mannvirkja á hálendinu, framtíðargildi svæða til útivistar og ferðamennsku, skipulagsmál og stefnumörkun voru meðal þess sem var til umræðu á málstofu Landverndar og verkefnisstjórnar rammaáætlunar sem haldin var 23. apríl 2001 - Nánar
- Málstofa um ferðamenn og virkjanir
Málstofan verður laugardaginn 7. apríl kl. 14:00 í Námunni, Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Afstaða ferðamanna til mannvirkja er meðal þess sem þarf að huga að þegar ákvarðanir eru teknar um virkjanir á hálendinu. 3. apríl 2001 - Nánar
- Rammaskýrla um rannsóknir um ferðamenn á hálendinu
Sækja Acrobat-lesara | Hér birtist í heild sinni skýrsla Rögnvaldar Guðmundssonar um rannsókn um ferðamenn á hálendinu sem hann gerði fyrir verkefnisstjórn Rammaáætlunar. Skýrslan er í pdf-formi og þarf Acrobat Reader lesara til að skoða hana. 3. apríl 2001 - Nánar
- Rannsókn á útvistargildi miðar vel fram
Liður í þessu vinnu við Rammaáætlun er að kanna ýmis svæði m.t.t. útivistar og ferðaþjónustu. Rögnvaldur Guðmundsson ferðamálafræðingur hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar hefur umsjón með þessum verki. Verkefnið felst m.a. í því að leggja mat á framtíðarmöguleika nokkurra svæða til útivistar og ferðamennsku. 3. apríl 2001 - Nánar
- Óbyggðir og erlendir ferðamenn
Erindi Arthúrs Björgvins Bollasonar flutt á málþingi um gildi landslags á hálendi Íslands í Norræna Húsinu laugardaginn 21. október 2000. 3. apríl. 2001 - Nánar
- Rannsókn um ferðamenn á hálendinu
Um 88-94% erlendra gesta og 88-91% Íslendinga, sem ferðuðust á hálendinu síðastliðið sumar, telja virkjunarmannvirki eins og háspennulínur og möstur, eða stíflur og miðlunarlón, óæskileg á þeim svæðum sem þeir ferðuðust um. 3. feb. 2001 - Nánar
- Val á aðferðafræði - Skýrsla til verkefnisstjórnar Rammaáætlunar
Endanleg útgáfa vinnuhóps um aðferðafræði og kemur skýrslan til verkefnisstjórnar Rammaátlunar hér í heild sinni. 19. des. 2000 - Nánar
- Kynningarfundir - Rammaáætlun kynnt á Hellu og Klaustri
Landvernd og verkefnisstjórn rammaáætlunar stóðu fyrir opnum kynningarfundum á Hellu og Kirkjubæjarklaustri þann 24. og 25. nóvember. 12. des. 2000 - Nánar
- Málþing um mat á landslagi - Hvernig metum við landslag?
Hér er að finna myndir og frásögn af málþingi um mat á landslagi sem haldið var í Norræna húsinu þann 21. október sl. 12. des. 2000 - Nánar
- Málstofa um áhrif virkjana á efnahag, atvinnu og byggðir
Vinna faghóps um efnahagsleg áhrif virkjana var kynnt á málstofu í Seðlabankanum þriðjudaginn 21. nóvember. Vel var mætt á málstofuna og góð umræða skapaðist um þá þætti sem faghópurinn hefur haft til skoðunar. 23. nóv. 2000
- Nánar
- Áhugaverður hádegisfyrirlestur um mat á landslagi
Telst landslag náttúruverðmæti? Fer það eftir fegurðarskyni hvers og eins, eða er hægt að beita hlutlægum aðferðum til meta landslag? Fyrirlestur á vegum Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma föstudaginn 10. nóvember nk. kl. 12.00. 18. okt. 2000
- Nánar
- Málstofa um náttúruverndargildi virkjunarsvæða
Málstofa um nýja skýrslu Náttúrufræðistofnunar var vel sótt og greinilega mikill áhugi meðal náttúrufræðinga á þeim tillögum sem fram koma í skýrslunni. 26. okt. 2000
- Nánar
- Málþing um mat á landslagi í Norræna húsinu á laugardag
Telst landslag náttúruverðmæti ? Hvernig metum við landslag? Fer það eftir fegurðarskyni hvers og eins, eða er hægt að meta landslag á hlutlægan hátt? Þetta viðfangsefni verður til umfjöllunar á málþingi á vegum Rammááætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og Landverndar laugardaginn 21. október í Norræna húsinu. 18. okt. 2000
- Nánar
- Nýjar leiðir til að meta verndargildi náttúru
- 21. sept. 2000
- Nánar
- Skýrsla alþjóðlegs vinnuhóps um vatnsafl og umhverfi
- 16. ágúst 2000
- Nánar
- Fjölmennur fundur í Skagafirði 30. júní 2000
Húsfyllir varð í félagsheimilinu Ljósheimum, rétt utan við Sauðárkrók, þegar Landvernd og verkefnisstjórn Rammaáætlunar stóðu fyrir opnum fundi um virkjunarkosti í Skagafirði, 22. júní síðastliðinn.
- Nánar
- Vettvangsferð verkefnisstjórnar 30. júní 2000
Myndir úr vettvangsferð verkefnisstjórnar um fyrirhuguð virkjanasvæði í Skagafirði.
- Nánar
- Ráðherrar svara fyrirspurnum frá verkefnisstjórn 21. júní 2000
Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra hafa sent verkefnisstjórn Rammaáætlunar bréf þar sem tekið er á ýmsum álitamálum um gerð Rammaáætlunar. Í bréfunum er leitast við að svara fyrirspurnum sem verkefnisstjórn lagði fram í mars sl. Sjá nánar svör hér að neðan:
- Kynning á Rammaáætlun á landsbyggðinni 9. júní 2000
Áhugasamir fundargestir höfðu fjölmargar spurningar á opnum kynningarfundum um Rammaáætlun sem haldnir voru nýlega á Reyðarfirði og á Akureyri. Landvernd og verkefnisstjórn Rammaáætlunar munu standa fyrir fleiri fundum á landsbyggðinni í framtíðinni, og er sá næsti áætlaður í Skagafirði þann 22. júní næstkomandi.
- Nánar
- Málstofa um aðferðafræði 11. maí 2000
Á málstofunni verða kynntir valkostir í aðferðafræði sem hægt er að nota við niðurröðun virkjanakosta. Alls verða fjórar aðferðir til umræðu.
- Nánar
- Hverjir skipa faghópa Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma 7. apríl 2000
Nú er hægt að sjá nöfn allra þeirra aðila sem skipa faghópana fjóra í Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Jafnframt má þar finna netföng hvers og eins.
- Sjá yfirlit um faghópa
- Málstofan um "Hagrænar leiðir" heppnaðist vel 4. apríl 2000
Góð þátttaka var í málstofu sem Þjóðhagsstofnun, verkefnisstjórn Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og Landvernd stóðu fyrir í Seðlabanka Íslands þann 23. mars sl. Þar fluttu hagfræðingarnir Páll og Magnús Harðarsynir einkar fróðlegt erindi þar sem gert var grein fyrir helstu aðferðum til að meta náttúru í krónum og aurum. Þá kynntu þeir nokkur dæmi um hvernig þessum aðferðum hefur verið beitt. Umræður voru líflegar og málefnalegar. Samantekt úr erindi Páls og Magnúsar finnur þú hér undir "fræðsluefni".
- Nánar
- Málstofa um hagrænar leiðir til að meta verðgildi náttúru 20. mars 2000
-
Málstofan verður fimmtudaginn 23. mars nk. kl. 16.00 - 18.00
- í húsakynnum Seðlabanka Íslands. - Nánar
- Málstofa um siðfræði og álitamál við virkjanir 3. mars 2000
-
verður haldin 6. mars í Háskóla Íslands, stofu 101 í Lögbergi. - Nánar
- Mat á langtímaáhrifum stórframkvæmda - kynningarfundur 7. jan. 2000
-
Opinn kynningarfundur 10.janúar kl.15.00 í Háskóla Íslands, stofu 201 í Odda.
- Umhverfismiðstöð Háskólans í Lundi kynnir aðferðir sem stofnuninn er að þróa.
- Náttúruverndargildi - ný skýrsla 13. des. 1999
-
Orkustofnun og Landsvirkjun gerðu sl. vor samning við Náttúrufræðistofnun Íslands
- um þróunarvinnu og ráðgjöf varðandi mat á náttúruverndargildi virkjunarsvæða.
- Samkvæmt samningnum tekur stofnunin að sér að þróa aðferðir til að meta
- náttúruverndargildi á tveimur hugsanlegum virkjunarsvæðum. Þessum aðferðum
- verði síðan unnt að beita á öðrum hugsanlegum virkjunarsvæðum.
- Náttúrufræðistofnun skilað nýlega áfangaskýrslu um þetta mikilvæga verkefni
- sem birt hefur verið hér á heimasíðu Rammaáætlunarinnar.
- Kynningarfundurinn um nýtingu vatnsafls og jarðvarma tókst vel 23. nóv. 1999
-
Skipulag og undirbúningur Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma
- var kynnt á opnum fundi sem haldinn var samtímis með fjarfunda- búnaði
- í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Ísafirði og Sauðárkróki.
- Margt fróðlegt á málstofu um aðferðafræði 23. nóv. 1999
-
Ræddar voru aðferðir til að meta virkjanahugmyndir og flokka þær á grundvelli
- hagkvæmni þeirra og fyrirsjáanlegra áhrifa þeirra á náttúru, minjar, útivist,
- hlunnindi, atvinnulíf og byggðaþróun.
- Rástefna um efnahagslegt gildi þjóðgarða 27. nóvember 23, nóv. 1999
-
Hvert er hlutverk þjóðgarða? Er tilgangur þeirra eingöngu að vernda
- eða er mögulegt að þjóðgarðar geti haft efnahagslegt gildi?
- Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra opna heimasíðu fyrir
Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma 15. okt. 1999 -
Í dag var opnuð heimasíða til að auðvelda almenningi og félagsamtökum að fylgjast
- með og taka þátt í gerð rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
- Málstofa um aðferðafræði opin almenningi 15. okt. 1999
- vegna mats á virkjanahugmyndum vegna Rammaáætlunar
- um nýtingu vatnsorku og jarðvarma.
- Boðað er til opins kynningarfundar 16. október 1999 13. okt. 1999
- Kynnt verður Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma,
- en fundirnir verða haldnir samtímis í Reykjavík, á Akureyri,
- Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Ísafirði og Sauðárkróki.
Smelltu á myndina til að setja sjálfvirkt hjá þér heimasíðu Rammaáætlunarinnar sem fyrstu síðu í hvert sinn sem þú ferð á Veraldarvefinn !
|