Gildi hálendisins fyrir ferðaþjónustu og útvist til 2020 Ný skýrslu á vegum rammaáætlunar
Fyrir tveimur árum var Rögnvaldi Guðmundssyni hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar falið að gera úttekt á framtíðargildi hálendsins fyrir ferðaþjónustu og útivist. Rögnvaldur stóð að víðtækum viðhorfskönnunum meðal ferðamanna og skipulagði marga fundi með staðkunnugu fólki til að meta gildi einstakara svæða á hálendinu. Svæðin sem tekin voru til skoðunar eru norðan Hofsjökuls, norðan Vatnajökuls, norðaustan Vatnajökuls, Síðuvatnasvæðið og Torfajökulssvæðið. Afrakstur þessara vinnu hefur nú verið tekin saman í skýrslu. M.a. er að finna í skrýslunni skipulagshugmyndir um framangreind svæði og spá um mögulegan fjölda ferðamanna þar árið 2020. Hægt er að kaupa skýrsluna með því að senda netpóst til rognv@hi.is. |