ji_frontimage5.jpg
Grænfáninn
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um verkefnið
Stýrihópur
Þátttaka
Viltu komast á græna grein?
Skrefin sjö
Að sækja um Grænfána
Skólar á grænni grein
Annað efni
Alþjóðasamtökin
Alþjóðlegt tengslanet

Fréttir
Tæplega 170 Skólar á grænni grein
22. janúar 2010 - Grænfáninn
Níunda starfsár Skóla á grænni grein er nú hálfnað. Á annan tug skóla hefur bæst í hópinn það sem af er þessu skólaári og ekkert lát á umsóknum. Í upphafi skólaársins 2001-2002 voru tólf grunnskólar sem riðu á vaðið með þátttöku í verkefninu en nú eru skólarnir tæplega 170 á öllum skólastigum vítt og breitt um landið. Ríflega helmingur þessara skóla hefur hlotið alþjóðlegu viðurkenninguna Grænfánann fyrir sitt starf að umhverfismálum og umhverfismennt.
nánar ->
Kópavogsbær veitir skólum á grænni grein viðurkenningar
24. ágúst 2009 - Grænfáninn
Leikskólarnir Álfaheiði, Fífusalir og Furugrund í Kópavogi hlutu í síðustu viku viðurkenningu umhverfisráðs Kópavogsbæjar fyrir athyglisvert framlag til umhverfismála. Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi vinnu og fræðslu til barna varðandi umhverfismál almennt. Í Kópavogi eru starfræktir 22 leikskólar og þrír þeirra taka þátt í verkefni Landverndar Skólar á grænni grein. Allir þessir leikskólar flagga nú grænfánanum, alþjóðlegri viðurkenningu fyrir starf sitt að umhverfismennt og menntun til sjálfbærrar þróunar.

Lesa má frekar um viðurkenningar Kópavogsbæjar hér á heimasíðu bæjarins.
nánar ->
Grænfáninn um allt land
30. júní 2009 - Grænfáninn
Nú eru rétt tæplega 160 skólar á grænni grein á öllum skólastigum hérlendis; 70 leikskólar, 78 grunnskólar, 7 framhaldsskólar og 2 háskólar. Þá eru tveir aðrir skólar, Vinnuskóli Reykjavíkur og Náttúruskóli Reykjavíkur, þátttakendur í verkefninu. Heildarfjöldi þeirra nemenda sem taka þátt í verkefninu er því rétt ríflega 30.100 eða tæplega 28% af öllum nemendum þessara skólastiga á landsvísu.
nánar ->
Varðliðar umhverfisins 2009
9. janúar 2009 - Grænfáninn
Boðað er í þriðja sinn til verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins en umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa að henni.
nánar ->
Enn fleiri skólar á grænni grein
20. nóvember 2008 - Grænfáninn
Það eru um 130 skólar á grænni grein á Íslandi. Borgaskóli í Reykjavík, Glerárskóli á Akureyri, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Leikskólinn Mánabrekka á Seltjarnarnesi og Hvolsskóli á Hvolsvelli hafa allir flaggað nýjum fána það sem af er þessu skólaári. Sumir skólanna í fyrsta sinn - aðrir í annað og þriðja skipti. Landvernd óskar þessum skólum til hamingju með sinn merka árangur!
nánar ->
Skólar á vorönn – síðustu tölur
9. júní 2008 - Grænfáninn
Það sem af er árinu 2008 hafa 38 skólar fengið náð fyrir augum okkar í stýrihópi um Grænfána og hafa fengið fána í vor eða fá hann í upphafi skólaárs í haust. Þetta eru 15 leikskólar, 22 grunnskólar og einn framhaldsskóli. 25 þessara skóla eru nú að fá sinn fyrsta fána en hinir að fá fána í annað, þriðja eða jafnvel fjórða skipti.
nánar ->
Fánar í Ólafsvík og Grindavík
6. febrúar 2008 - Grænfáninn
Leikskólarnir Krílakot í Ólafsvík og Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík hafa fengið Grænfánan og hafa fengið Grænfánann. Krílakot er sjötti skólinn á Snæfellsnesi sem fær fánann og heilsuskólinn krókur er annar skólinn á Suðurnesjum sem fær hann.
nánar ->
Fáni í Flataskóla
29. janúar 2008 - Grænfáninn
Að morgni 25. jan. ákvað Vetur konungar að minna á sig, þyrfti virkilega aftur að fresta Grænfánahátíð vegna veðurs? En þannig fór það ekki. Hátíðin var haldin um hádegið. Kórsöngur, ávörp og hið skemmtilega stompatriði og svo sveif Grænfánann upp í vindinn.
nánar ->
Grænfáninn þaninn á Álftanesi
30. nóvember 2007 - Grænfáninn
Um 400 nemendur, kennarar og starfsfólk Álftanesskóla, formaður umhverfisnefndar, forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri, voru samankomin í íþróttahúsinu við söng og ávörp þegar Álftanesskóla tók við fána öðru sinni. Nemendur tóku við fánanum og upp fór hann, í hífandi rokið.
nánar ->in english ->
Njarðvíkurskóli fær Grænfánann
28. nóvember 2007 - Grænfáninn
Grunnskólinn í Njarðvík fékk á dögunum afhentan Grænfána við hátíðlega athöfn sem fór fram í íþróttasal skólans. Njarðvíkurskóli varð fyrstur grunnskóla á Suðurnesjum til þess að fá afhentan Grænfána. Í tilefni dagsins var haldinn sérstakur fjölskyldudagur í skólanum þar sem fjölskyldum nemenda var boðið í heimsókn.
nánar ->
Hátíð í Bullungaskógi
20. nóvember 2007 - Grænfáninn
Náttúran við Laugarvatn sveipaði sig dulúðugum skýjaslæðum mánudaginn 19. nóvember og gufur stigu beint til himins. En í Bullungaskógi, sunnan grunnskólans, var líf og fjör. Þar er hópuðust nemendur, kennarar, foreldrar og aðrir gestir á Kólosseum og tóku á móti nýjum Græfána.
nánar ->in english ->
Grænfáninn í Garðabæ
19. nóvember 2007 - Grænfáninn
Það var sannarlega kátt í Hofsstaðaskóla á degi íslenskrar tungu 16. nóv. 2007. Ekki var nóg með að þar væri haldið upp á fæðingardag Jónasar Hallgrímssonar heldur var haldið upp á 30 ára afmæli skólans. Rúsínan í pylsuendanum var að skólinn fékk afhentan Grænfána fyrir vel unnin störf að umhverfismálum og umhverfismennt.
nánar ->in english ->
Grænfánar á Snæfellsnesi
9. nóvember 2007 - Grænfáninn
Það var nóg um að vera síðastliðinn miðvikudag á Snæfellsnesinu en þá fengu bæði leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði og Laugargerðisskóli í Miklaholtshreppi Grænfánann afhentan. Sama dag var leikskólinn Krílakot í Ólafsvík heimsóttur en hann hefur nú sótt um að fá Grænfánann.
nánar ->in english ->
Skólar á grænni grein í meira en helmingi sveitarfélaga
25. október 2007 - Grænfáninn
Nú er að finna skóla á grænni grein í meiri hluta sveitarfélaganna 79 í landinu! Í 43 sveitarfélögum eru skólar sem sækja ótrauðir að Grænfána eða flagga honum nú þegar.
nánar ->in english ->
Gangur í Grænfánanum, 100 skólinn og MH
5. október 2007 - Grænfáninn
Ingunnarskóli er kominn á græna grein og þar með eru 100 skólar í verkefninu. Í tilefni af þeim tímamótum fóru fulltrúar Landverndar og færðu stjórnendum og nokkrum nemendum skólans staðfestingarskírteinið.
nánar ->
Skólar á grænni grein á Vesturlandi
3. október 2007 - Grænfáninn
2. október var hátíðardagur í Brekkurbæjar- skóla á Akranesi. Eftir rúmlega tveggja ára vinnu var takmarkinu náð og Grænfáninn dreginn að húni. Úrhellisrigning var um morguninn en þegar fáninn blakti í golunni braust sólinn fram úr skýjum.
nánar ->
Hvaða skóli verður 100. skólinn á grænni grein?
15. september 2007 - Grænfáninn
Nú er að hefjast 8. skólaárið síðan umhverfis- ráðherra, formaður Landverndar og fulltrúar 12 grunnskóla undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um verkefnið Skólar á grænni grein Þátttakendur nálgast nú hundraðið.
nánar ->
Hálsakot Grænfáninn í annað sinn
3. september 2007 - Grænfáninn
Leikskólinn Hálskot í Breiðholti fékk Grænfánnann í annað sinn föstudaginn 31. ágúst. Fjölmargir gestir komu í Hálsakot og tóku þátt í hátíðinni. Flutt voru ávörp og nemendur sungu áður en fáninn var afhentur og hann dreginn að húni.
nánar ->
Grænfáninn í Tjarnarseli
18. ágúst 2007 - Grænfáninn
Leikskólinn Tjarnarsel í Reykjanesbæ fékk afhentan Grænfánann föstudaginn 17. ágúst 2007. Tjarnarsel ef fyrsti skólinn á Suðurnesjum sem nær þeim áfanga. Verkefnið á nú töluverðu fylgi að fagna á Suðurnesjum því á u.þ.b. einu ári hafa þrír skólar þar skráð sig í verkefnið.
nánar ->
Grænfáninn í sól og sumri á leikskólanum Norðurbergi
29. júní 2007 - Grænfáninn
Grænfáninn var dreginn að húni á Leikskólanum Norðurberg í þriðja sinn í gær, 28. júni, en menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir afhenti fánann ásamt fulltrúum Landverndar.
nánar ->in english ->
Áframhaldandi Grænfánaafhendingar
20. júní 2007 - Grænfáninn
Mikið er um að vera þessa vordaga hjá mörgum af þeim skólum sem taka þátt í verkefninu “Skólar á grænni grein” en alls sendu 15 skólar inn umsókn um Grænfánann þetta vorið. ...
nánar ->
Grænfáninn blaktir
5. júní 2007 - Grænfáninn
Grænfána- afhendingar hófust með trompi í síðustu viku, nánar þann 30. maí síðastliðinn, þegar 4 skólar fengu Grænfánann. Alls sendu 15 skólar ...
nánar ->in english ->
Grænar umsóknir
23. febrúar 2007 - Grænfáninn
Þessa dagana eru að berast umsóknir og skýrslur frá skólum á grænni grein sem vilja fá að flagga Grænfánanum ...
nánar ->
Leikskólar flagga Grænfánanum
8. desember 2006 - Grænfáninn
Lýðveldis- dagurinn 1. desember var hátíðlegur hjá Leikskólanum Mánabrekku og Krakkakoti en þá drógu ...
nánar ->
Gróska í verkefninu Skólar á grænni grein
14. nóvember 2006 - Grænfáninn
Foldaskóli hefur fengið Grænafánann en skólinn hefur unnið metnaðarfullt að umhverfismálum síðastliðinn tvö ár. Frá því í haust hafa 8 skólar bæst í hóp þeirra sem taka þátt í verkefninu Skólar á grænni grein, 6 grunnskólar og 2 leikskólar.
nánar ->
Gerðaskóli á grænni grein
21. október 2006 - Grænfáninn
Gerðaskóli í Garði er komin á græna grein og stefnir að því að fá Grænfánann. Umhverfisnefnd Gerðaskóla hefur haldið reglulega fundi og nýlega kynnti Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, verkefnið fyrir nefndarmönnum.
nánar ->
Fyrsti framhaldsskólinn til að hljóta Grænfánann
18. september 2006 - Grænfáninn
Menntamála- ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir afhenti Fjölbrautarskólanum við Ármúla, Grænfánann við hátíðlega athöfn. Í tilefni dagsins bauð skólinn nemendum, starfsfólki og gestum upp á lífrænt ræktaða ávexti, te og annað góðgæti.
nánar ->
Skólaheimsóknir og Grænfánar
9. júní 2006 - Grænfáninn
Í gær, 8. júní, var 16. fáni vorsins dreginn að húni í leikskólanum Álfheimum á Selfossi. Það hefur verið mikil og skemmtileg törn að heimsækja alla þessa skóla, fyrst til að skoða þá og meta og síðan að fara með fána og taka þátt í gleðinni þegar nýir fánar fá að blakta við skólana.

nánar ->
Grænfánaafhendingar vorsins
15. maí 2006 - Grænfáninn
Það er gaman þessa dagana, 16 nýir fánar blakta við íslenska skóla áður en sumarleyfi hefjast. 8 skólar eru að fá fána í fyrsta skipti, 5 í annað skipti og 3 í þriðja skipti.
nánar ->
Göngum í skólann
18. apríl 2006 - Grænfáninn

Fuglarnir eru komnir, sumardagurinn fyrsti 20. apríl og þriðjudagurinn 25. apríl er dagur umhverfisins. Ærin tilefni til að við tökum okkur á og allir gangi eða hjóli í skóla og vinnu, nemendur, kennarar, foreldrar. Að gera það að lífsstíl sínum að ganga eða hjóla til skóla eða vinnu, eða taka strætó ef fjarlægðir eru of miklar, hefur ótal kosti í för með sér. Gangan styrkir okkur sjálf bæði líkamlega og andlega og visthæfur ferðamáti dregur verulega úr mengun umhverfis. Í Evrópu er í gangi átak barna í að safna grænum sporum – þeir sem vilja taka þátt geta lesið allt um málið á vefsíðu: átaksins.
nánar ->
Grænfáni í Fálkaborg
10. apríl 2006 - Grænfáninn

Nokkrir skólar hafa sótt um að fá Grænfána í vor og stýrihópur verkefnisins er í óða önn að heimsækja skóla, tala við fólk og meta starf skólanna. Fyrsti fáni vorsins var dreginn að húni við mikinn fögnuð viðstaddra í Fálkaborg í Breiðholti föstudaginn 7. apríl.
nánar ->
Fundur Skóla á grænni grein
20. mars 2006 - Grænfáninn
Fimmtudaginn 16 mars hittust á fundi í Laugardalnum næstum 60 fulltrúar Skóla á grænni grein á Suður- og Suðvesturlandi. Fyrst var hlýtt á vekjandi og skemmtileg erindi. Gunnar Hersveinn, upplýsingafulltrúi Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, kallaði erindi sitt, (Ó)ánægðir lýðræðissinnar!, um möguleika til að skapa virkt lýðræði og Gýgja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, fjallaði um Hreyfihvetjandi skólaumhverfi. Eftir almennar umræður og kaffi ræddu þátttakendur saman í smáhópum. Niðurstöður hópanna eru nú að berast til Landverndar og þær munu birtast hér á vefnum smátt og smátt og vera sendar þátttakendum í tölvupósti.
nánar ->
Alþjóðlegverkefni hér og þar
6. mars 2006 - Grænfáninn
Fjöldi alþjóðlegra verkefna í skólum er slíkur að ef kennarar vildu gætu þeir líklega stöðugt látið nemendur sína vinna að þeim – og sleppt öllu öðru! Ekki er mælt með því en hitt er að það er ákaflega skemmtilegt að krydda daglegt puð með verkefnum sem vitað er að nemendur og kennarar í öðrum löndum eru líka að bauka við. Slík verkefni mynda tengsl út í heim og eru mikilvægur undirbúningur fyrir framtíðina í heimi þar sem samskipti þjóða á milli verða stöðugt meiri og mikilvægari og þá ekki síst í umhverfismálum.
nánar ->
Tónerhylki
27. febrúar 2006 - Grænfáninn
Eitt af atriðum gátlistans okkar er:
"Fyllt er á tónerhylki í prenturum í stað þess að kaupa ný."
Þetta er mikilvægt atriði. Að henda stöðugt hylkjum og kaupa ný eykur mengun og álag á umhverfi. Það fara 1-2 lítrar af jarðolíu í framleiðslu hvers hylkis, þau eru fyrirferðarmikil í ruslinu og liggja órotnuð í jörðu um aldir.
nánar ->
FÆRNI
30. janúar 2006 - Grænfáninn
Fjórir skólar í Reykjavík og einn í Kópavogi eru nú að hefja þátttöku í verkefni sem er kallað á alþjóðatungum COPE (Children, Outdoor, Participation, Environment) en mætti kannski kalla FÆRNI. Þetta er þróunarverkefni unnið fyrir tilstuðlan Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið verkefnisins er að börn og ungt fólk þjálfist í að skoða umhverfi sitt, náttúrulegt og manngert, og meti það m.t.t. þarfa sinna og eigin heilbrigðis. Verkefnið á einnig að auka nemendum sjálfstraust og færni til að taka þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Það á að hvetja skóla til að nýta nágrenni skóla sinna til kennslu og að vera fyrirmynd um hvernig skólar og skipulagsyfirvöld geti unnið saman.
nánar ->
Gleðilegt ár
2. janúar 2006 - Grænfáninn
Við hér á skrifstofu Landverndar sendum bestu nýárskveðjur í skóla landsins. Við þökkum ykkur Skólum á grænni grein frábært starf á sviði umhverfismála og vonum, og reyndar vitum, að sífellt fleiri skólar bætast í þann hóp okkur öllum, landi okkar og ekki síst komandi kynslóðum til heilla. Við hlökkum til samstarfsins á nýju ári.
nánar ->
Áratugur umhverfismenntar
2. janúar 2006 - Grænfáninn
Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að tilnefna árin 2005-2014 áratug menntunar til sjálfbærrar þróunar.
Sýn og þróun UNESCO
Í menntun til sjálfbærrar þróunar felst:
- að virða, meta og varðveita þann árangur sem náðst hefur;
- að hafa mætur á undrum Jarðar og þjóðum heims;
- að búa í heimi þar sem allir hafa næga fæðu til að lifa heilbrigðu og gjöfulu lífi;
- að leggja mat á, annast og lagfæra ástand Jarðar okkar;
- að skapa góðan, öruggan og réttlátan heim og njóta hans;
- að vera ábyrgir borgarar sem rækja rétt sinn og skyldur í samfélagi, þjóðfélagi og heiminum öllum.
nánar ->
Námskeið í Borgarnesi
25. nóvember 2005 - Grænfáninn
Kennarar úr ,,skólum á grænni grein" á Vesturlandi og frá Tálknafirði komu saman til fundar í Borgarnesi 21. nóvember s.l. til að ráðgast um framgang verkefnisins.
nánar ->
Comenius – verkefni
14. nóvember 2005 - Grænfáninn
Alltaf annað slagið eru skólar að leita að samstarfsaðila í fjölþjóðlegum verkefnum. Nýlega barst okkur fyrirspurn frá írskum skóla sem langar að fá íslenskan skóla í hópinn í viðbót við ítalskan og pólskan.
nánar ->
Norrænt / baltneskt verkefni um útikennslu
14. nóvember 2005 - Grænfáninn
Nú er að hefjast á öllum Norðurlöndunum, baltnesku löndunum og í St. Pétursborg í Rússlandi verkefni í útikennslu. Verkefnið er unnið vegna óska frá Norrænu ráðherranefndinni og því er stýrt af Dönsku útvistarsamtökunum. Þau hafa aftur leitað samstarfs við þá aðila sem halda utan um verkefnið “Skólar á grænni grein” í viðkomandi löndum og þar á meðal til Landverndar.
nánar ->
Grænfáni á grenistöng við Laugarvatn
19. október 2005 - Grænfáninn
Nú er Grænfáninn kominn á Laugarvatn þar sem mikil áhersla er lögð á útikennslu.
nánar ->
Gróður- og jarðvegseyðing í myndum barna
10. október 2005 - Grænfáninn
UNEP vill heyra hvað börnin hafa að segja um gróðureyðingu og eyðimerkur og efnir til myndlistarkeppni. Íslenskir grunnskólar geti tekið þátt.
nánar ->
Öldutúnsskóli í Hafnarfirði fær Grænfánann
20. september 2005 - Grænfáninn
Nýlega bættist Öldutúnsskóli í Hafnarfirði í hóp Grænfánanskóla hér á landi.
nánar ->
Síðustu tölur
19. september 2005 - Grænfáninn
Nú er skólastarf hafið af fullu um allt land. Eitt af haustverkum í mörgum skólum hefur verið að sækja um að skólinn fari á græna grein. Núna eru 37 grunnskólar í verkefninu, af þeim hafa 15 fengið Grænfánann. Leikskólarnir eru 17 og næstum helmingur þeirra er kominn með fána.
nánar ->
Grænfánar um allt land
2. júní 2005 - Grænfáninn
Þessa dagana fá margir grunnskólar og leikskólar Grænfánann.
nánar ->
Leikskólinn Steinahlíð fær Grænfánann
18. maí 2005 - Grænfáninn

Leikskólinn Steinahlíð í Reykjavík bættist í vaxandi hóp leikskóla sem hafa heimidl til að flagga Grænfánanum.
nánar ->
Námsstefna í Selásskóla
8. apríl 2005 - Grænfáninn
Árlegri námsstefnu Skóla á grænni grein var haldin í Selásskóla í Reykjavík 18. mars s.l. Þangað mættu hátt í 70 fulltrúar víðs vegar að af landinu. Flutt voru tvö framsöguerindi. Þau voru um nýjungar í skipulagi skólalóða og um vistvæn innkaup. Á eftir erindunum tóku fulltrúarnir þátt í hópastarfi og skiptist á skoðunum í almennum umræðum. Sjá myndir.
nánar ->
Græn vika Evrópusambandsins - 2005
31. janúar 2005 - Grænfáninn
Umhverfisátakið Græn vika verður haldin á ný á þessu ári á vegum Evrópusambandsins. Markmiðið með vikunni er að auka vitund fólks á umhverfismálum. Þema vikunnar í ár er loftslagsbreytingar.
Í tilefni af Grænni viku býðst nemendum á aldrinum 6-16 ára að taka þátt í verðlaunasamkeppni. Samkeppnin fer fram í tveimur flokkum sem báðir tengjast þema vikunnar.
nánar ->
Astrid Lindgren og útikennsla
6. desember 2004 - Grænfáninn
Í ágúst verður haldin ráðstefna í Svíþjóð sem hlýtur að verða ævintýralega skemmtileg. Hana á að halda í heimabæ Astridar Lindgren og á að fjalla um bækur hennar og tengsl þeirra við útikennslu. Skipuleggjendur hennar vilja gjarnan fá þátttakendur frá Íslandi. Hugsanlega væri hægt að fá styrk til þátttöku frá Alþjóðaskrifstofunni (Comenius). Upplýsingar um þessa ráðstefnu er að finna á vefsíðunni: www.vimmerby.se/like
nánar ->
Úrslit í teiknimyndasamkeppninni
6. desember 2004 - Grænfáninn
Nú hafa dómarar lokið störfum og niðurstaða fengin í teiknimyndasamkeppni Skóla á grænni grein. Í flokki barna fékk 1. verðlaun mynd Rúmeníu, 2. verðlaun mynd krakkanna í Portúgal og 3. verðlaun fóru til Írlands. Íslenska myndin sem krakkarnir í Fossvogsskóla gerðu var í 8. sæti. Í flokki unglinga fóru 1. verðlaunin til Portúgals, 2. verðlaunin til Búlgaríu og 3. verðlaunin til Skotlands. Myndin úr Engidalsskóla varð í 7. sæti.
nánar ->
Barnaráðstefna um umhverfismál
6. desember 2004 - Grænfáninn
Dagana 23.-27. maí verður haldin barnaráðstefna um umhverfismál í Stavanger í Noregi. Gert er ráð fyrir að þangað komi um 500 börn frá 20 löndum. Þátttakendur eiga að vera á aldrinum 11-13 ára, 2-10 í hverjum hópi ásamt fullorðnum. Ráðstefnan er ætluð börnum, kennurum, foreldrum og áhugasömum samtökum. Þarna verða fyrirlestrar og sýningar, vinnuhópar og vettvangsferðir og væntanlega mikið fjör. Sækja þarf um fyrir 10. janúar og allar upplýsingar eru á vefsíðunni: www.ung-agenda-21.no
nánar ->
Síðustu tölur og enn einn fáninn
22. nóvember 2004 - Grænfáninn
Núna eru 23 grunnskólar skráðir í verkefnið Skólar á grænni grein og af þeim hafa 10 þegar fengið fána. Skráðir leikskólar eru 10 og af þeim hafa þrír fengið fána og sá fjórði bætist við þann 1. des. Þá ætlar umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, að afhenda leikskólanum Mánabrekku á Seltjarnarnesi Grænfána. Hann mun síðan blakta við skólann næstu tvö árin til marks um það hve gott starf þar fer fram á sviði umhverfismála og umhverfismenntar. Gert er ráð fyrir að fáninn verði dreginn að húni upp úr klukkan 10:30. Þá ætti að vera orðið sæmilega bjart úti á þessum skammdegismorgni – en óháð veðri og dagsbirtu verður örugglega sólskinsbros á hverju andliti krakkanna í Mánabrekku þennan dag.
nánar ->
Teiknimyndasamkeppninni breytt
8. nóvember 2004 - Grænfáninn
Á árinu 2004 er alþjóðlega verkefnið Skólar á grænni grein (Eco-Schools) 10 ára. Af því tilefni var efnt til alþjóðlegrar samkeppni barna og unglinga í gerð veggspjalda um umhverfismál. Keppt var í tveimur aldursflokkum, börn og unglingar. Hver aðildarþjóð átti að efna til samkeppni innan síns lands og velja eitt veggspjald í hvorum flokki. Senda átti síðan verðlaunaspjöldin til sýningar á Spáni og bjóða einum höfundi hvers verðlaunaspjalds að koma og vera viðstaddur sýninguna. Allt hljómaði þetta ákaflega spennandi en satt að segja ótrúlegt og margt fer öðru vísi en ætlað er.

nánar ->
Alþjóðleg verkefni
18. október 2004 - Grænfáninn
Umhverfismál eru í eðli sínu alþjóðleg, geta ekki verið annað – við eigum jú öll saman aðeins eina Jörð og náttúran sjálf virðir engin landamæri. Eitt af markmiðum verkefnisins “Skólar á grænni grein” er að auka alþjóðleg tengsl á milli skóla. Verkefnið er starfrækt í 30 löndum og bara það að nemendur skólanna vita að úti um allt eru aðrir krakkar að vinna að sömu verkefnum og markmiðum og þeir ætti að auka forvitni og efla samkennd þvert á landamæri. Stjórnendur verkefnisins leggja líka mikla áherslu á að skólar í ólíkum löndum myndi tengsl, til dæmis með að koma sér upp vinaskólum í öðrum löndum. Einnig efna samtökin til alls kyns verkefna og samkeppna og hafa milligöngu um að kynna slík verkefni sem aðrir standa að. Eitt slíkt verkefni er Volvo verkefnið sem nú er verið að auglýsa.

nánar ->
Fræðslumiðstöð umhverfis og náttúru
12. október 2004 - Grænfáninn
Stjórn Landverndar hefur ákveðið að kljúfa fræðsluverkefni sín frá öðrum verkefnum og stofna Fræðslumiðstöð umhverfis og náttúru. Markmið hennar er að efla þekkingu og skilning á náttúru og umhverfi í þeim tilgangi að stuðla að sjálfbærri þróun. Innan hennar yrðu Grænfánaverkefnið, Alviðra, Vistvernd í verki og Bláfáninn. Vonandi verður það til að efla verkefnin og styrkja þau fjárhagslega.

nánar ->
Frestun haustfundar
11. október 2004 - Grænfáninn
Allt frá því að verkefnið Skólar á grænni grein hófst hafa fulltrúar skólanna hist á fundi eða námstefnu á haustin. Þar hafa ýmis mál verið kynnt og fólk haft tækifæri til að bera saman bækur sínar. Á 12. fundi stýrihóps, sem haldinn var 4. október, var ákveðið að fresta fundinum nú fram í febrúar vegna verkfalls grunnskólakennara.

nánar ->
Bíllausir dagar, tökum þátt
13. september 2004 - Grænfáninn

Tökum þátt, tökum þátt –
Evrópska samgönguvikan 16.-22. sept.

Rúmlega 30 lönd og mörg hundruð borgir taka þátt í evrópsku samgönguvikunni sem lýkur með bíllausa deginum 22. september. Þema vikunnar nú er öruggar götur fyrir börn. Í Reykjavík er skipulögð mikil dagskrá alla daga vikunnar og má nálgast hana á heimasíðu borgarinnar www.rvk.is. Mikilvægt er að nota tækifærið og hvetja alla til að leggja bílum eins og hægt er og draga fram hjólin, ganga eða taka strætó. Foreldrar ættu alla jafna ekki að aka börnum sínum í skólann. Ef þeir treysta börnunum ekki til að ganga einum ættu foreldrar að fylgja þeim í skólann fótgangandi. Allir hafa gott af hreyfingu og mikilvægt að gera hana að eðlilegum þætti í dagskrá hvers dags. Ýmis verkefni...

nánar ->
Tvö veggspjöld til Spánar
23. júní 2004 - Grænfáninn

Niðurstaða úr veggspjaldasamkeppni Grænfánans liggur nú fyrir. Tvö veggspjöld verða send til Spánar og hljóta þar verðugan sess meðal veggpspjalda frá fjölmörgum Grænfánaskólum í Evrópu.
nánar ->
Síðustu tölur - gleðilegt sumar
14. júní 2004 - Grænfáninn
Nú hefur síðasti Grænfáninn í bráð verið afhentur. 8. júní var fáninn góði dreginn að húni við leikskólann Álfheima á Selfossi við mikinn fögnuð. Nú hafa því 14 skólar á landinu náð þessum áfanga. Svo undarlega bregður þó við að eftir standa aðeins 13 fánar. Ástæðan er sú einn af okkar ágætu Grænfánaskólum, Þykkvabæjarskóli, var lagður niður sem sjálfstæð eining og sameinaður skólanum á Hellu.
nánar ->
Selásskóli fagnar með nýjum fána
3. júní 2004 - Grænfáninn
Þann 1. júní s.l. fögnuðu nemendur, kennarar og starfsmenn Selásskóla því að skólinn fékk Grænfánann í annað sinn.

nánar ->
Nýr fáni í Borgarfjörð
1. júní 2004 - Grænfáninn

Andakílsskóli í Borgarfirði fékk aftur Grænfánann 28. maí sl. Gamli fáninn var orðinn mjög lúinn eins og myndin ber með sér. Það var því tímabært að fá nýjan fána. Úttekt á skólanum leiddi í ljós að umhverfisstarfið í Andakílsskóla er öflugt enn sem fyrr.
nánar ->
Grænfáninn í Salaskóla
27. maí 2004 - Grænfáninn

Salaskóli í Kópavogi hefur fengið Grænfánann. Salaskóli er tólfti skólinn á Íslandi og þriðji skólinn í Kópavogi til að hljóta þessa eftirsóttu viðurkenningu. Umhverfisráðherra færði skólanum fánann f.h. Landverndar og Tryggvi Felixson framkvæmdastjóri Landverndar var mættur með alþjóðlegt viðurkenningarskjal sem staðfestir góðan árangur og góðan ásetning Salaskóla. Sjá myndir á heimasíðu Salaskóla. (Heimasíða Salaskóla)
nánar ->
Grænfánaljóð í Gnúpverjaskóla
25. maí 2004 - Grænfáninn
Heiðrún Kristmundsdóttir og Guðmundur Stefánsson í 6. bekk og Jóhann í 7. bekk Gnúpverjaskóla fluttu frumsamin ljóð þegar skólinn fékka Grænfánann. Jóhanna Höeg Sigurðardóttir flutti líka ljóð sem hún hafið ort með afa Steinþóri Gestssyni.
nánar ->
Brautarholts- og Gnúpverjaskóli með fána
21. maí 2004 - Grænfáninn
Þriðjudaginn 18. maí mættu fulltrúar Landverndar í fylgd með menntamálaráðherra til að afhenda Brautarholts - og Gnúpverjaskóla, ásamt leiksskólanum Leikholt, Grænfánann.
nánar ->
Starfið er margt - ársskýrslan
19. maí 2004 - Grænfáninn
Í tengslum við aðalfund Landverndar 22. maí 2004 hefur verið tekin saman skýrsla um Grænfánaverkefnið ,,Skólar á grænni grein".
nánar ->
Íslendingar á Spáni - fréttabréf Eco-Schools
17. maí 2004 - Grænfáninn
Fréttabréf Grænfánaskólanna (Eco-Schools International Newsletter) fyrir apríl mánuð kom út fyrir skömmu. Eins og venjulega eru þar fréttir víðs vegar að en ein þeirra fangar fljótt augað því að þar er sagt frá heimsókn starfsfólks leikskólans Mánabrekku á Seltjarnarnesi í þrjá leikskóla í Madrid og eru Spánverjarnir harla glaðir yfir þeim. Það er ljóst að þar hafa kennararnir frá Íslandi ekki bara verið að kynna sér málin heldur hafa þeir líka miðlað gagnlegum upplýsingum til baka.
nánar ->
Fossvogsskóli með nýjan fána
12. maí 2004 - Grænfáninn
Umhverfisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík voru mætt í Fossvogskóla miðvikudaginn 12. maí til að fagna því að Fossvogsskóli verður áfram með Grænfánann. Úttekt Landverndar staðfestir að skólinn hefur viðhaldið öflugu starfi á sviði umhverfisverndar og umhverfismenntar.
nánar ->
Slitinn fáni við Andakílskóla- nýr á leiðinni
8. maí 2004 - Grænfáninn
Stýrihópur Grænfánans hefur verið að taka út skóla sem sótt hafa um Grænfánann. Andakílsskóli í Borgarfirði var einn af þremur fyrstu skólum á Íslandi sem fékk Grænfánann fyrir tveimur árum. Skólinn hefur sótt um að fá að halda fánananum næstu tvö ár. Veður og vindar hafa sett mark sitt á gamla fánann sem blakti við skólann þegar skoðunarmenn Landverndar mættu á staðinn 4. maí s.l. Alls verða veittir 8 Grænfánar nú í vor til vitnis um gott umhverfsstarf og umhverfismennt.
nánar ->
Páskaungar og farfuglar
3. maí 2004 - Grænfáninn
Það virðist verða sívinsælla að unga út hænueggjum fyrir páska á hinum og þessum stöðum til þess eins að horfa á krílin og dásama þau. Svo vappa vesalingarnir um í umhverfi þar sem sannarlega eru ekki kjöraðstæður fyrir slík dýr; í búðargluggum, stórmörkuðum, fyrir framan ljósmyndara og – í skólum. Eftir páska eru allir ungar horfnir. Hvar ætli þeir séu?
nánar ->
Fréttabréf alþjóðasamtakanna í mars
5. apríl 2004 - Grænfáninn
Mars fréttabréf Grænfánaskólanna (Eco-Schools International Newsletter) er komið út. Eins og áður er þar ýmsan fróðleik að finna héðan og þaðan úr heiminum. Þar er minnt á að alþjóðlegi umhverfisdagurinn, 5. júní, er nú tileinkaður verndun hafsins. Það þema stendur okkur Íslendingum nærri og við ættum auðvitað ekki að þurfa sérstakan umhverfisdag til að minna okkur á mikilvægi þess. Í fréttablaðinu er líka aðeins minnst á heimasíðu samtakanna. Hún er uppfull af skemmtilegheitum enda mun hún hafa fengið um 10 000 heimsóknir í mars.
nánar ->
Fundur stýrihóps
29. mars 2004 - Grænfáninn
Þann 18. mars hittist stýrihópur verkefnisins um Skóla á grænni grein. Þar var rætt um fjármál verkefnisins og fleira en aðallega var þó verið að ræða þá skóla sem eru að sækja um að fá fána í vor. Fundargerðin er komin á sinn stað hér á heimasíðunni og hægt að sjá hana með því að fara í Stýrihópur í dálknum hér til vinstri.
nánar ->
Dagur Jarðar
22. mars 2004 - Grænfáninn
22. apríl er dagur Jarðar. Í ár er okkar gamli og þjóðlegi hátíðisdagur, sumardagurinn fyrsti, þennan sama dag. Í kennarahorni á heimasíðunni www.earthday.net geta skólar skráð sig og fengið aðgang að ýmiss konar efni um umhverfismál sem nýtist í skólastarfi.
nánar ->
Fréttabréf Skóla á grænni grein
15. mars 2004 - Grænfáninn
Febrúar fréttabréf Grænfánaskólanna (Eco-Schools International Newsletter) er komið út. Þar er ýmsan fróðleik að finna héðan og þaðan úr heiminum svo sem frá Suður-Afríku, Tyrklandi og Slóveníu. Þarna má líka lesa fréttir frá Wales um meira en tífalda fjölgun Skóla á grænni grein á fimm árum. Ástæðan er samstillt átak stjórnvalda og ,,Landverndar” þeirra Breta. Eitt sem gert er í Bretlandi og við gætum velt fyrir okkur er að tengja umhverfisstarfið í skólunum við nám bæði í lífsleikni og heilsufræði. Fréttabréfið greinir líka frá þriggja ára átaki sem nú er að hefjast gegn því að Norðursjórinn sé notaður sem ruslakista. Nú í vikunni verður í Gautaborg fjölþjóðleg ráðstefna, skipulögð af Grænfánaskólunum, þar sem rætt verður á hvern hátt kennarar og skólar geta komið inn í þetta verkefni.
nánar ->
Vorannir
8. mars 2004 - Grænfáninn
Nú eru vorannir að hefjast hjá stýrihópi Landverndar um Grænfána. Margir skólar vilja fá að flagga Grænfánanum í vorblænum áður en skólum er lokað að vori og sjá þannig blaktandi viðurkenningu fyrir allt erfiði vetrarins og undanfarinna ára. Í vor eru liðin tvö ár síðan fyrstu skólarnir fengu fána og þeir þurfa því að sækja um aftur nú og sýna fram á að starfinu hefur verið haldið áfram.
nánar ->
Umhverfisgátt
23. febrúar 2004 - Grænfáninn
Þann 11. febrúar opnaði Fræðslumiðstöð Reykjavíkur sérstakan vef á heimasíðu sinni sem heitir Umhverfisgátt. Þarna er að finna alls kyns fróðleik, hagnýt ráð og leiðbeiningar fyrir skóla sem eru að efla umhverfisstarf sitt.
nánar ->
Alviðra
9. febrúar 2004 - Grænfáninn
Eins og allir vita þá rekur Landvernd fræðslusetrið í Alviðru við Sogið. Þar er lokað núna yfir háveturinn. Þann 9. mars verður opnað aftur með dagskrána Víða leynist líf og tekið á móti skólabörnum í dagsferð eða til sólarhrings dvalar. Kjörorð Alviðru eru Fróðleikur, skemmtun, útivist. Nánari upplýsingar: Hjördís B. Ásgeirsdóttir (hjordis@landvernd.is).
nánar ->
Menntamálaráðuneytið og framhaldsskólarnir
2. febrúar 2004 - Grænfáninn
Eins og fram hefur komið í fréttum á heimasíðu Landverndar hefur menntamálaráðuneytið veitt Skólum á grænni grein – Grænfánaverkefninu góðan stuðning. Ráðuneytið hefur staðfest að það ætli að styrkja verkefnið um 700 þúsund krónur á þessu ári. Jafnframt óskar ráðuneytið eftir því að lögð verði áhersla á að kynna verkefnið í framhaldsskólum.
nánar ->
Fréttabréf Eco-Schools
2. febrúar 2004 - Grænfáninn
Nýlega er komið út fréttabréfið sem alþjóðasamtökin gefa út: Eco-Schools International, des.2003/jan.2004. Þar er greint frá ýmsu sem er að gerast vítt og breitt um heiminn meðal annars því að nú ætla Chile-búar að fara taka þátt í verkefninu, fyrstir þjóða Ameríku.
nánar ->
Samkeppni skóla um veggspjald
25. janúar 2004 - Grænfáninn
Athygli er vakin á samkeppni um veggspjald sem alþjóðlegu samtökin eru að hrinda af stað og fjallað er um hér neðst á síðunni. Allir skólar á grænni grein geta verið með. Keppt er í tveimur aldurshópum, 6-12 ára og 13-18 ára. Margvíslegur heiður fellur í hlut þeirra skóla sem vinna í hverju landi og m.a. geta þeir sent einn nemanda til Spánar í haust, eða tvo ef þeir eiga vinningslið í báðum aldurshópunum, að kynna skólann sinn. Kynnið ykkur málin og verið með!
nánar ->
Skólar á grænni grein
21. janúar 2004 - Grænfáninn
Nú í upphafi árs 2004 eru á Íslandi 20 grunnskólar á grænni grein. Þar af hafa 8 þegar fengið grænfánann. Auk grunnskólanna eru sjö leikskólar þátttakendur og þar af hefur einn fengið fánann. Í vor eru tvö ár frá því að fyrstu skólarnir fengu fána á Íslandi svo að ef þeir ætla að halda sínum fánum þurfa þeir að fara að huga að framhaldsumsókn. Athygli er vakin á því að ef skólar ætla að fá grænfánann á þessu skólaári er óskað eftir því að þeir skili umsókn til Landverndar fyrir 1. mars.
nánar ->
Dagar í Dublin
9. desember 2003 - Grænfáninn
Dagana 5. og 6. desember var haldinn í Dublin á Írlandi árlegur fundur verkefnisstjóra um Grænfána. Fundinn sóttu 28 fulltrúar frá 22 löndum en örfáa fulltrúa vantaði. Grænfánaverkefnið er í stöðugum vexti. Nú eru þátttökuskólar líklega á milli 30-40 þúsund, flestir í Evrópu.
nánar ->
Grænfáninn annars staðar en í grunnskólum
9. desember 2003 - Grænfáninn
Á fundi verkefnisstjóra um Grænfána í Dublin varð mikil umræða um hvort rétt væri að útvíkka verkefnið til annarra en grunnskóla svo sem leikskóla og háskóla. Langflestir voru á því að verkefnið ætti heima í öllum skólum. Einhvers staðar hafði elliheimili spurt hvort það gæti fengið Grænfána.
nánar ->
Grænfáninn á Írlandi og víðar
9. desember 2003 - Grænfáninn
Grænfánaverkefninu er stýrt nokkuð á ólíka vegur frá einu landi til annars. Á Írlandi byrja allir skólarnir á að vinna eingöngu að því að minnka rusl, að flokka, endurnýta og endurvinna. Þegar markmiðum sem skólarnir setja sér er náð þá geta þeir sótt um Grænfánann. Þá byrja þeir á næsta verkefni.
nánar ->
Námsstefna 2003
28. október 2003 - Grænfáninn
Fimmtudaginn 23. október héldu Skólar á grænni grein sína þriðju haustnámsstefnu. Í tilefni af ári vatnsins var hún haldin í Gvendarbrunnahúsi Orkuveitu Reykjavíkur við Heiðmörk.
nánar ->
Leikskólarnir með
16. október 2003 - Grænfáninn
Nú geta leikskólar sótt um að komast á græna grein í umhverfismálum og keppt að því að fá Grænfánann rétt eins og grunnskólarnir á eigin forsendum.
nánar ->
Sótt um fyrir leikskóla
29. ágúst 2003 - Grænfáninn
Leikskólar hafa sýnt mikinn áhuga á umhverfismálum og unnið ákaflega vel á því sviði. Þeir hafa margir leitað eftir því að fá að taka sjálfstæðan þátt í Grænfánaverkefninu. Stýrihópur um Grænfána er nú að skrifa höfuðstöðvum verkefnisins til að leita eftir að svo geti orðið.
nánar ->
20 skólar á grænni grein
29. ágúst 2003 - Grænfáninn
Nú eru 20 skólar á landinu þátttakendur í Grænfánaverkefninu og eru því á grænni grein. Af þessum 20 hafa 7 þegar fengið Grænfánann og sá áttundi fær hann nú í september.
nánar ->
Ný uppfærsla vefs Landverndar
3. júlí 2003 - Grænfáninn
Ný uppfærsla vefs Landverndar er komin í loftið með sérvefi fyrir Vistvernd í verki, Bláfánann, Grænfánann og Rammaáætlun. Auk nýs útlits er nú vefurinn uppfærður með fullkomnu vefumsjónarkerfi sem gerir notkun hans mun markvissari.
nánar ->
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: graenfani@landvernd.is