ji_frontimage7.jpg
Grænfáninn
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um verkefnið
Stýrihópur
Þátttaka
Viltu komast á græna grein?
Skrefin sjö
Að sækja um Grænfána
Skólar á grænni grein
Annað efni
Alþjóðasamtökin
Alþjóðlegt tengslanet

Tæplega 170 Skólar á grænni grein
22. janúar 2010 - Grænfáninn
Níunda starfsár Skóla á grænni grein er nú hálfnað. Á annan tug skóla hefur bæst í hópinn það sem af er þessu skólaári og ekkert lát á umsóknum. Í upphafi skólaársins 2001-2002 voru tólf grunnskólar sem riðu á vaðið með þátttöku í verkefninu en nú eru skólarnir tæplega 170 á öllum skólastigum vítt og breitt um landið. Ríflega helmingur þessara skóla hefur hlotið alþjóðlegu viðurkenninguna Grænfánann fyrir sitt starf að umhverfismálum og umhverfismennt.
nánar ->
24. ágúst 2009 - Grænfáninn
Kópavogsbær veitir skólum á grænni grein viðurkenningar
Leikskólarnir Álfaheiði, Fífusalir og Furugrund í Kópavogi hlutu í síðustu viku viðurkenningu umhverfisráðs Kópavogsbæjar fyrir athyglisvert framlag til umhverfismála. Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi vinnu og fræðslu til barna varðandi umhverfismál almennt. Í Kópavogi eru starfræktir 22 leikskólar og þrír þeirra taka þátt í verkefni Landverndar Skólar á grænni grein. Allir þessir leikskólar flagga nú grænfánanum, alþjóðlegri viðurkenningu fyrir starf sitt að umhverfismennt og menntun til sjálfbærrar þróunar.

Lesa má frekar um viðurkenningar Kópavogsbæjar hér á heimasíðu bæjarins.
nánar ->
30. júní 2009 - Grænfáninn
Grænfáninn um allt land
Nú eru rétt tæplega 160 skólar á grænni grein á öllum skólastigum hérlendis; 70 leikskólar, 78 grunnskólar, 7 framhaldsskólar og 2 háskólar. Þá eru tveir aðrir skólar, Vinnuskóli Reykjavíkur og Náttúruskóli Reykjavíkur, þátttakendur í verkefninu. Heildarfjöldi þeirra nemenda sem taka þátt í verkefninu er því rétt ríflega 30.100 eða tæplega 28% af öllum nemendum þessara skólastiga á landsvísu.
nánar ->
Sameinu þjóðirnar munu halda alþjóðlega umverfisráðstefnu barna í Stavanger í Noregi dagana 17.-21. júní 2008. Ráðstefnan er kölluð Tunza 2008 og er ætluð börnum á aldrinum 10 – 14 ára sem eru áhugasöm og virk í umhverfismálum ásamt kennurum þeirra, foreldrum eða öðrum forráðamönnum. Búist er við um þúsund þátttakendum frá öllum heimshornum.
meira...
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: graenfani@landvernd.is