 |
|
 |
|
 |
|
|
 |
 |
| Viltu gerast leiðbeinandi hjá Vistvernd í verki? |
| 9. september 2009 - Vistvernd í verki |
 Vistvernd í verki leitar að öflugu vistverndarfólki til að hjálpa til við að innleiða lífsstíl sem sparar bæði orku og peninga og um leið bætir umgengni við móður Jörð. Áhugasömum býðst að taka þátt í 20 tíma námskeiði fyrir leiðbeinendur 30. október til 1. nóvember. Á námskeiðinu læra þátttakendur listina að leiðbeina. Farið verður í gegnum helstu verkefni leiðbeinandans, s.s. að stýra fundum, kveikja áhuga, vinna saman í hóp og miðla fróðleik.
Engin skilyrði eru fyrir þátttöku en námskeiðið veitir þeim sem áður hafa tekið þátt í visthópi réttindi til að leiðbeina á námskeiðum Vistverndar í verki. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Bryndís Þórisdóttir, fyrrverandi verkefnisstjóri Vistverndar í verki.
Námskeiðsgjald er kr. 25 000. Sveitarfélög sem eru þátttakendur í verkefninu veita styrki til að greiða námskeiðsgjald.
Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu í síma 552 5242 eða hjá vistvernd@landvernd.is
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|
 |
 |
 |
 |
|
|