 |
|
 |
|
 |
 |
 |
Bláfáninn |
|
|
|
Upplýsingar |
|
|
|
Fróðlegt efni um
verndun hafsins |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
| 10 ára afmæli Bláfánans á Íslandi |
| 27. janúar 2012 - Bláfáninn |
Í ár eru tíu ár liðin frá því að Landvernd innleiddi Bláfánaverkefnið á Íslandi. Verkefnið felst í því að veita rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda viðurkenningu fyrir vistvæna starfshætti og þjónustu sem stuðlar að verndun umhverfisins við sjóinn. Um er að ræða viðurkenningu í formi fána sem ætlað er að vekja verðskuldaða athygli á því að handhafinn uppfylli kröfur Bláfánans og beri þannig hag almennings og umhverfis fyrir brjósti í umgengni sinni við sjóinn. Fyrstu handhafar Bláfánans á Íslandi voru Stykkishólmshöfn og Hafnarhólmahöfn á Borgarfirði eystri , ásamt Bláa lóninu og Ylströndinni í Nauthólsvík. Alls hafa sex rekstraraðilar smábátahafna og baðstranda tekið þátt í verkefninu, auk hvalaskoðunarfyrirtækjanna Eldingar, Norðursiglingar og Sérferða.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Tími til að sækja um Bláfánann 2011 |
| 6. febrúar 2011 - Bláfáninn |
Nú líður að nýju Bláfánatímabili og rennur frestur til að sækja um Bláfánann fyrir árið 2011 út 28. febrúar nk. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisviðurkenning sem veitt er rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda. Bláfánaverkefninu var hleypt af stokkunum á Íslandi árið 2003 og flagga nú sex staðir fánanum en það eru Hafnarhólmahöfn í Borgarfirði, Arnarstapahöfn, Stykkishólmshöfn, Suðureyrarhöfn, Bláa lónið og Ylströndin í Nauthólsvík. Eitt hvalaskoðunarskip flaggar Bláfánaveifu en hana geta þeir fengið sem undirrita viljayfirlýsingu um framúrskarandi vistvæna umgengni við hafið.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Tími til að sækja um Bláfánann |
| 10. febrúar 2009 - Bláfáninn |
Frestur til að að sækja um Bláfánann fyrir 2009 styttist nú óðum en skrifstofa Landverndar tekur við umsóknum til 28. febrúar nk. Umsóknareyðublöð má nálgast hér á vefnum: www.landvernd.is/blafaninn Hér á landi flagga sex staðir Bláfánanum en það eru Arnarstapahöfn, Hafnarhólmi á Borgarfirði eystri, Stykkishólmshöfn og Suðureyrarhöfn. Baðstrendurnar Bláa lónið og Ylströndin í Nauthólsvík hafa auk þess tekið þátt í verkefninu í sex sumur.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Tími til að sækja um Bláfánann 2009 |
| 12. desember 2008 - Bláfáninn |
Nú líður að því að rekstraraðilar smábátahafna og baðstanda þurfi að hefja undirbúning að árlegri umsókn um Bláfánann en frestur til að sækja um fyrir árið 2009 er til loka febrúar. Undanfarin ár hefur Landvernd, í samstarfi við hagsmunaaðila og samtök, unnið að því að innleiða
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn að húni í 6. sinn |
| 12. júní 2008 - Bláfáninn |
Bláfáninn var dreginn að húni við Bláa lónið miðvikudaginn 4. júní. Þetta er í sjötta sinn sem Bláa Lónið hlýtur þessa virtu umhverfisviðurkenningu sem veitt er baðströndum og smábátahöfnum. Það voru börn af leikskólanum Króki í Grindavík drógu fánann að húni en leikskólinn fékk nýverið afhendan Grænfánann.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Umsóknir um Bláfánann 2008 |
| 24. janúar 2008 - Bláfáninn |
Skrifstofa Landverndar er þessa dagana að kynna Bláfánann fyrir rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda og er frestur til að sækja um og/eða endurnýja aðild fyrir árið 2008 til 21. febrúar nk. Umsækjendur geta nálgast eyðublöð hér á heimasíðu Landverndar eða haft samband við skrifstofu og fengið sent eyðublað í pósti eða tölvupósti.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Hvalaskoðun Reykjavíkur fær Bláfánaveifur |
| 21. júní 2007 - Bláfáninn |
Hvalaskoðun Reykjavíkur hefur fengið Bláfánaveifur fyrir skip sín Eldingu og Hafsúluna fyrir árið 2007. Veifan er til vitnis um það að forsvarsmenn hafi áritað yfirlýsingu um að fyrirtækið muni tileinka sér ...
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn á Ylströndinni í Nauthólsvík |
| 20. júní 2007 - Bláfáninn |
Þann 13. júní sl fékk Ylströndin í Nauthólsvík Bláfánann fyrir að hafa lagt sig verulega fram við að vernda umhverfið, bæta öryggismál og aðstöðu á baðströndunum og veita fræðslu um náttúruna og umhverfið. ...
|
nánar ->  in english -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn við Bláa lónið. |
| 31. maí 2007 - Bláfáninn |
Þann 29. maí sl. var Bláfáninn dreginn að húni við Bláa lónið. Þetta er í fimmta sinn sem Bláa Lónið hlýtur þessa virtu umhverfis- viðurkenningu sem veitt er baðströndum...
|
nánar ->  in english -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn í Borgarfirði eystri |
| 15. maí 2007 - Bláfáninn |
Bátahöfninni Hafnarhólma, Borgarfirði eystri hefur verið veittur Bláfáninn 2007. Þetta er í fimmta sinn sem höfninn er afhentur Bláfáninn.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn við íslenskar baðstrendur |
| 16. júní 2006 - Bláfáninn |
Þann 13. júní sl fengu baðstrandirnar, Ylströndin í Nauthólsvík og Bláa lónið bláfánann fyrir að hafa lagt sig verulega fram við að vernda umhverfið, bæta öryggismál og aðstöðu á baðströndunum og veita fræðslu um náttúruna og umhverfisvernd.  
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn í Stykkishólmshöfn |
| 13. júní 2006 - Bláfáninn |
Stykkishólmshöfn var fyrsta höfnin sem hlaut Bláfánann.  Það var þann 13. júní 2003 Stykkishólmshöfn er því að fá fánann í 4. sinn. Gestir Bláfánahafna geta verið vissir um að hámarks snyrtimennsku sé gætt á svæðinu, sjórinn sé hreinn, viðhald bygginga sé í góðu standi og að fræðsla um verndun umhverfisins sé til staðar fyrir gesti.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfánaveifur blakta hjá Hafsúlunni hvalaskoðun og Eldingu hvalaskoðun |
| 12. maí 2006 - Bláfáninn |
Hvalaskoðunarfyrirtækin Hafsúlan hvalaskoðun og Elding hvalaskoðun hafa fengið afhentar Bláfánaveifur fyrir skip sín árið 2006. Veifan er til vitnis um það að forsvarsmenn hafi áritað yfirlýsingu um að fyrirtækin muni tileinka sér skilgreindar umhverfisreglur í starfsemi sinni.
Með því að starfa samkvæmt umhverfisreglum Bláfánans stuðla hvalaskoðunarfyrirtækin að því að lágmarka umhverfisálag í anda hugmynda um sjálfbæra ferðaþjónustu.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Umsóknir fyrir árið 2006 |
| 19. desember 2005 - Bláfáninn |
Hafnir og baðstrandir sem sækjast eftir Bláfánanum á árinu 2006 þurf að leggja fram umsókn eigi síðar en 20. febrúar n.k.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn blaktir við Blá Lónið |
| 24. maí 2005 - Bláfáninn |
 Blá Lónið hefur fengið Bláfánann 2005 til vitnis um góðan árangur og góða viðleitni í verndun umhverfis og fyrir að standast kröfur um vatnsgæði, öryggismál og þjónustu.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláir fánar 2005 |
| 19. maí 2005 - Bláfáninn |
Alþjóðlegadómnefndin fyrir Bláfánann (International Blue Flag Jury) hefur veitt Landvernd heimild til að veita fimm Bláfána á árinu 2005. Fyrsti fáninn var dregin að húni í Bláa Lóninu s.l. mánudag.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Lýst eftir höfnum - umsóknir fyrir 15. febrúar 2005 |
| 3. janúar 2005 - Bláfáninn |
Um þessar mundir er verið að senda öllum hafnarstjórnum, sem eru liðlega 40 á Íslandi, bréf um Bláfánann. Í bréfinu er hvatt til þátttöku í Bláfánanum sem er verkefni sem getur veitt gagnlega leiðsögn um hvernig betur megi vernda umhverfið, bæta öryggismál og aðstöðu og auka fræðslu um umhverfið. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Norður-Sigling undir merkjum Bláfánans |
| 23. ágúst 2004 - Bláfáninn |
  Norður-Sigling á Húsavík hefur sett sér metnaðarfulla umhverfisstefnu og undirgengist markmið Bláfánans um markvissar aðgerðir til verndar umhverfi og náttúru. Hvalaskoðunarskip Norður-Siglingar mun því eftirleiðis sigla undir veifu Bláfánans til vitnis um góða viðleitni fyrirtækisins til að efla umhverfisvernd og umhverfisvitund.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Bláfáninn blaktir við baðstaði |
| 4. júní 2004 - Bláfáninn |
Í dag, 4. júní 2004, var Bláfáninn dregin að húni við Nauthólsvík og í Bláa lóninu. Þetta er annað árið sem heimild hefur fengist til að draga Bláfánann að húni á Íslandi.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Fyrsti fáninn 2004 dregin að húni |
| 1. júní 2004 - Bláfáninn |
  Ingibjörg E. Björnsdóttir úr stýrihópi Bláfánans á Íslandi var mætti í höfnina í Stykkishólmi s.l. laugardag og hafði Bláfánann 2004 í meðferðis. Fáninn var dreginn að húni í sólskininu til vitnis um góða umgengni, umhverfsivernd og fræðslu. Fleiri staðir fá Bláfánann á næstu dögum.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Fimm Bláfánaumsóknir afgreiddar |
| 21. mars 2004 - Bláfáninn |
Íslenska dómnefndin fyrir Bláfánann hefur afgreitt fimm umsóknir um Bláfána 2004. Þetta eru Blá lónið, Nauthólsvík, Arnarstapahöfn, höfnin í Borgarfirði Eystra og Stykkishólmshöfn. Alþjóðdómnefndin hefur fengið viðeigandi gögn í hendur og úrskurður hennar er væntanlegur fyrir lok apríl.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Umsóknir um Bláfána metnar |
| 9. mars 2004 - Bláfáninn |
Nokkrar umsóknir hafa borist um Bláfánann. Dómnefnd Bláfánans á Íslandi kom saman til fundar mánudaginn 8. mars og er nefndin byrjuð að fara yfir umsóknir. Niðurstöðu nefndarinnar er að vænta 21. mars n.k.
|
| nánar -> |
 |
 |
 |
| Lýst eftir höfnum - umsóknir fyrir 1. mars |
| 21. janúar 2004 - Bláfáninn |
Um þessar mundir er verið að senda öllum hafnarstjórnum, sem eru liðlega 40 á Íslandi, bréf um Bláfánann. Í bréfinu er hvatt til þátttöku í Bláfánanum sem verkefni sem geti veitt gagnlega leiðsögn um hvernig betur megi vernda umhverfið, bæta öryggismál og aðstöðu og auka fræðslu um umhverfið. Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k.
|
| nánar -> |
 |
|
 |
|
 |
 |
 |
 |
|
|