Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað árið 2002 fjöllum. Landvernd og Náttúrufræði- stofnun Íslands vilja af því tilefni vekja athygli á mikilvægi fjalla fyrir íslensku þjóðina. Þessi heimasíða er liður í þeirri viðleitni. Hér getur þú fræðst um flóru, fánu, vatn og list í fjöllum Íslands.

Ljósm: Eðvarð Sigurgeirsson
   Nánar




DV - Landvernd og Náttúrufræðistofnun kynna:

Héraðsfjallið mitt og þjóðarfjall Íslands

Hvað væri Ísland án fjalla?

Fjöllin gegna afar mikilvægu hlutverk íslensku þjóðlífi, bæði landfræðilega og tilfinningalega.

  • Fjöllin eru afgerandi þáttur í landslagi Íslands og hafa haft mótandi áhrif á náttúrufar landsins.
  • Fjöllin eru forsenda vatnabúskaps á landinu.
  • Fjöllin eru uppspretta ævintýra, þjóðsagna og goðsagna sem móta menningu þjóðarinnar.
  • Fjöllin eru skjól þeirra sem leita frá manngerðu umhverfi og áreiti þéttbýlis í friðsæld og tign náttúrunnar.
  • Fjöllin eru í vaxandi mæli auðlind fyrir efnahag Íslands sem ein mikilvægasta undirstaða nýrrar og spennandi ferðaþjónustu.